Svartur, eitraður reykur, fugladauði í massavís og svört rigning. Svona lýsa íbúar í rússneska hafnarbænum Tuapse við Svartahaf aðstæðum síðustu daga. Ástæðan eru drónaárásir Úkraínumanna á olíuhreinsistöð Rosneft í bænum. Úkraínumenn hafa sett aukinn þunga í árásir á olíuinnviði Rússa undanfarna mánuði.
Þriðja árásin á tveimur vikum
Þetta er þriðja árásin á olíuhreinsistöðina á síðustu tveimur vikum. Stórir eldar hafa brotist út og fólk sem býr næst olíuhreinsistöðinni hefur þurft að flýja heimili sín. Olía hefur flætt út í sjó og í á sem rennur í gegnum bæinn og íbúar hafa lýst svartri rigningu yfir borginni, sem skilur eftir sig svarta slikju um allt.
Tuapse er í suðurhluta Rússlands, við Svartahaf, um 230 kílómetra frá Úkraínu.
Úkraínsk stjórnvöld hafa sagst bera ábyrgð á árásunum og segja þær réttmætar í ljósi þess að Rússar nýti ágóða sinn af olíuútflutningi til að knýja áfram stríðið í Úkraínu.
Á vef BBC segir að rúmlega 160 slökkviliðsmenn hafi verið sendir á vettvang til að berjast við eldinn sem braust út eftir nýjustu árásina. Tekist hefur að slökkva mesta eldinn og stöðva flæði olíunnar. Enginn lést í árásinni.
Veniamin Kondratyev, héraðsstjóri í Krasnodar-héraði, sagði á Telegram í vikunni að slökkviliðsmenn og aðrir björgunaraðilar hefðu unnið við mjög erfiðar aðstæður og sagði þá hafa unnið hetjudáð. „Forgangsmál hjá okkur er að vernda líf og heilsu bæjarbúa og gesta.“
Stærsta umhverfisslys á svæðinu síðustu ár
Íbúar hafa sagt svarta rigningu falla til jarðar, brunalykt liggja í loftinu og mikinn fugladauða. Margir segja olíukennda, svarta dropa hafa birst á fötum og húð eftir að fólk dvaldi utandyra.
Yfirvöld hafa hvatt íbúa til að hafa glugga lokaða og takmarka þann tíma sem þeir séu úti. Þykkan reyk hefur lagt frá brennandi olíu yfir byggð. Hann er mettaður efnum úr olíu.
Nadezhda Zhosan er íbúi í bænum. Hún bað um ráð í hópi á Telegram.
„Getið þið sagt mér hvað ég á að gera? Kettirnir mínir tveir og hundurinn minn eru þaktir olíu. Hvernig get ég þvegið þá? Þeir þjást, sérstaklega hundurinn. Ég reyndi að þvo þá upp úr olíu en það virkar ekki.“
Annar íbúi deildi mynd af höndum barns síns sem voru svartar eftir að það hafði leikið sér úti.
„Barnið lék sér úti í garði í 10 mínútur. Hendur þess eru þaktar olíu.“
Yevgeny Vitishko, umhverfisverndarsinni, er í ráðgjafanefnd héraðsstjórnarinnar. Hann sagði við fjölmiðla í héraðinu að þetta væri stærsta umhverfisslys á svæðinu síðustu ár. „Að mínu mati eru afleiðingarnar verri en olíulekinn sem varð nálægt Anapa í desember 2024.“
Sjónarvottar hafa birt myndir og myndbönd af fuglum við ströndina nærri Tuapse. Þeir eru þaktir olíu. „Fjaðrir þeirra eru fastar saman, þeir geta ekki flogið eða hreyft sig almennilega. Sumir þeirra sýna engin viðbrögð þegar mannfólk er nærri.“
Umhverfissinnar segja svörtu rigninguna myndast þegar brennisteins- og nitursambönd sem losna við bruna olíunnar safnast fyrir í andrúmsloftinu og falla til jarðar sem menguð úrkoma. Hún getur innihaldið sót og blöndu eitraðra efna, þar á meðal bensen, tólúen og xýlen.
Fólk sem andar menguninni að sér getur fundið fyrir ertingu í lungum, hósta og bruna í húð og slímhúð. Til lengri tíma litið getur mengunin aukið hættu á krabbameini og taugasjúkdómum.