Við verðum í beinni frá fjöldafundi í Austurbæjarbíó þar sem Kristrún Frostadóttir ávarpaði gesti vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar – og í beinni frá fundi sem Átak, félag fólks með þroskaröskun, stendur fyrir um sama málefni. Félagið bauð fulltrúum að mæta þangað og sitja fyrir svörum.
Við sjáum einnig myndir frá hamfaraflóðum í Nepal og verðum í beinni frá Austurlandi þar sem við ræðum við sveitarstjóra Múlaþings um öryggismál á ferðamannastöðum í kjölfar banaslysa í Stuðlagili. Við skoðum einnig nýjan og risastóran leikskóla sem er að rísa í Elliðaárdal og hittum Siggu Beinteins sem syrgir Dolly Parton – líkt og aðdáendur víða um heim.
Í Sportpakkanum hitum við upp fyrir leik Víkings í Evrópudeildinni og heyrum í andstæðingum - sem hlakkar í vegna slæmrar stöðu liðsins.
Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar klukkan 18:30.