Rúnar Jósefsson, íbúi á Skagaströnd, segir að hann hafi ítrekað reynt að hringja í 112 á föstudagsmorguninn án þess að ná sambandi. Rúnar ætlaði að kalla til sjúkrabíl vegna bróður síns en báðir eru þeir á áttræðisaldri.
Rúnar les upp úr símtalaskrá sinni og segir að hann hafi hringt samtals fimm sinnum á tíu mínútna tímabili í kringum klukkan 9 um morguninn. „Ég var hálfhissa á þessu. Það voru fimm skipti sem ég hringi og það skeður ekki neitt,“ segir hann.
Hvað gerðist þegar þið hringduð í 112?
„Það hringdi bara og það svaraði enginn. Eins og ef ég myndi hringja í þig nema það svaraði enginn,“ segir Rúnar.
Á sama tíma hringdi frænka Rúnars, sem stödd var annars staðar á landinu, í Neyðarlínuna til að kalla til sjúkrabíl fyrir bræðurna en náði ekki í gegn fyrr en í þriðju tilraun.
Rúnar gat hringt önnur símtöl úr síma sínum og brá á það ráð að hringja á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi þar sem svarað er í símann á dagvinnutíma.
Bræðurnir keyrðu áleiðis á Blönduós og sjúkrabíllinn mætti þeim á leiðinni. Rúnar telur þó tvímælalaust að sambandsleysið hafi valdið töf á því að bróðir hans kæmist undir læknishendur. „Ég segi ekki að þetta hafi skilið á milli lífs og dauða en sama er um. Við hefðum ekki þurft að fara með hann í bílnum á móti þeim.“
Orsök liggur ekki fyrir
Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segist ekki vita til þess að álag hafi verið á föstudagsmorguninn sem gæti skýrt sambandsleysi. Að hans viti hafi kerfi 112 verið í fullri virkni. Hann segir þó óviðunandi að fólk nái ekki í Neyðarlínuna og að taka þurfi þetta til skoðunar.
Jón bendir á að símtölin gætu hafa komið úr síma sem varð fyrir áhrifum af lokun 2G- og 3G-kerfanna. Símtæki sem reiða sig á 3G-farsímakerfið geta ekki hringt neyðarsímtöl í 112.
Vilji fólk ganga úr skugga um að þetta eigi ekki við um þeirra tæki er því bent á að hringja í númerið 1280 þar sem sjálfvirkur símsvari svarar hvort símtalið fari í gegn eða ekki.