Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands, sem tekur þó fram að úrkoman nái væntanlega ekki yfir á Austurland og þar ætti því að haldast bjart veður.
Á morgun á lægðin að þokast norðaustur yfir land. Hún verður þó búin að grynnast talsvert og mestur vindur úr henni. Víða skúrir, en þurrt framan af degi norðaustantil á landinu og stöku skúrir þar síðdegis.
Milt í veðri, hiti kemst líklega í 14 til 15 stig austanlands í dag og einnig norðan heiða á morgun.
Á þriðjudag er síðan spáð vestan og suðvestan golu eða kalda með smáskúrum vestantil, en þurru og björtu veðri um landið austanvert.