Frá þessu greinir í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar.
Þar segir einnig að tilkynnt hafi verið um rúðubrot í skóla en ekki farið inn í skólann. Lögregla gerði viðeigandi ráðstafanir á vettvangi. Þá var tilkynnt um innbrot í umdæminu Kópavogur/Breiðholt en innbrotsþjófurinn var farinn þegar að var komið.
Lögregla var einnig kölluð til vegna umferðaróhapps þar sem minniháttar meiðsl urðu á fólki. Þá voru nokkrir stöðvaðir í umferðinni, meðal annars einn sem var að tala í símann undir stýri, auk þess að vera ökuréttindalaus og ljóslaus.
Hafði viðkomandi raunar aldrei öðlast ökuréttindi.