Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor segir líklegt að ólga innan Samfylkingarinnar vegna útlendingamála sé merki um blundandi óánægju sem ekki hafi fengið að brjótast fram undanfarin ár. Ólgan kunni að hafa áhrif á fylgi flokksins, sérlega þar sem mikið sóknarfæri sé á vinstri væng íslenskra stjórnmála.
55 félagar Samfylkingarinnar ásamt óflokksbundnum jafnaðarmönnum mótmæltu lögum um brottvísunarbúðir í aðsendri grein á Vísi í vikunni. Eiríkur telur ólgu innan flokksins helst greinanlega í baklandinu fremur en þingflokknum.
Margir af fyrrum helstu forystumönnum flokksins hafi þó stigið fram ásamt nýjum röddum. Óánægjan er að mati Eiríks merki um meira en bara átök í útlendingamálum þrátt fyrir að sú breyting sé ákveðin umpólun í stefnu Samfylkingarinnar.
Stefnubreyting án umræðu
„Að mörgu leyti fer þessi stefnubreyting fram án umræðu inni í flokknum, án ályktana eða breytinga sem fara í gegnum formlegan feril, segir Eiríkur.
„Heldur er þetta einfaldlega áherslubreyting forystunnar sjálfrar og það er auðvitað það sem hefur kannski vakið svona mesta gremju, að manni virðist utan frá séð.“
Mögulega sé flokkurinn orðinn svo stór að innan hans verði að geta verið til andstæðar skoðanir „Auðvitað er það þannig að stórir stjórnmálaflokkar þurfa að geta hýst andstæðar skoðanir. Að geta verið það sem er kallað breið kirkja í stjórnmálunum þar sem eru margar vistarverur,“ segir Eiríkur.
„Menn sameinast um megin ytri gildi en hafa síðan ólíkar áherslur í ýmsum málum og forysta í stórum stjórnmálaflokki þarf að geta tekið utan um það.“
Lítið pláss fyrir aðrar skoðanir
Að hans mati hefur Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, verið sterkur leiðtogi innan flokksins „Hún hefur tekið stjórnina mjög mikið til sín og kannski hefur verið minna rými fyrir önnur sjónarmið inni í flokknum undir hennar stjórn heldur en stundum áður,“ segir Eiríkur.
„Það er kannski sú gremja sem er svolítið að koma upp á yfirborðið núna.“
Engar opinberar deilur sé hægt að greina innan þingflokksins. „En nú áttar maður sig ekki alveg á því, í þingflokkum hefur fólk ekki saman málfrelsi gagnvart formanninum eins og aðrir flokksmenn hafa, svo við vitum það ekki,“ segir Eiríkur.
Kann að hafa áhrif á fylgi flokksins
Hann telur líklegt að ólgan kunni að hafa áhrif á fylgi flokksins sérstaklega þar sem miklir möguleikar séu á vinstri væng stjórnmálanna fyrir sameinaða fylkingu.
„Þar er eyða í stjórnmálunum sem er bara ekki verið að fylla,“ segir Eiríkur sem tekur fram að vissulega sé Vinstrihreyfingin grænt framboð ennþá til en hún sé þó ekki á þingi og þannig sé ekki hægt að flykkja sér að baki flokknum.
„Það hefur ekki komið fram einhvers konar breiðfylking til vinstri en ég hugsa að margt af þessu fólki í Samfylkingunni gæti allt eins verið fylgismenn slíks flokks,“ segir Eiríkur.