Stefán Jón segir þrýsting hafa verið um að „ryðja“ starfsmönnum RÚV úr vegi
Formaður stjórnar RÚV, Stefán Jón Hafstein, sagði í ræðu á ársfundi ríkisfjölmiðilsins að hann hefði ítrekað orðið var við þrýsting utan frá um að stjórn gripi inn í frétta- og dagskrármál hjá RÚV. Hann sagði jafnframt að sumir hefðu gengið svo langt að fara fram á að ákveðnum starfsmönnum yrði vikið frá störfum.
Í ræðu sinni boðaði stjórnarformaðurinn aukið hlutverk stjórnar við stefnumótun og dagskrármál hjá RÚV. Hann sagði jafnframt að tekið yrði á gæðamálum í frétta- og dagskrárgerð og að tími væri kominn til aðgerða.
AuglýsingSegir óskað eftir að stjórn „taki á málum“
Stefán Jón sagði að hann hefði átt „mörg samtöl utanhúss“ þar sem kallað hefði verið eftir því að stjórn RÚV gripi inn í ýmis mál sem tengjast frétta- og dagskrárgerð.
„Fyrir utan að ryðja raðir starfsmanna,“ sagði hann í ræðunni.
Hann tiltók hvorki hverjir hefðu sett slíkar kröfur fram né hvaða starfsmenn ætti að víkja frá að mati þessara aðila. Þá lagði hann áherslu á að utanaðkomandi aðilar kæmu hvorki að ráðningum né stefnumótun hjá ríkisfjölmiðlinum.
„Ég bið ekki um þakklæti fyrir þau störf,“ sagði Stefán Jón og bætti við að sjálfstæði RÚV væri grunngildi sem stjórnin hygðist verja.
Vill stærra hlutverk stjórnar í dagskrármótun
Í ræðunni kom einnig fram að stjórn RÚV hygðist taka virkari þátt í mótun dagskrárstefnu og megináherslna miðilsins.
Stefán Jón rifjaði upp að þegar hann sjálfur starfaði hjá RÚV á árum áður hefði ríkt sú hugsun að starfsmenn miðilsins ættu einir að móta dagskrána. Að hans mati væru þeir tímar liðnir.
„Í samvinnu við útvarpsstjóra setur stjórnin markmið og annast nauðsynlega stefnumótun, þar með talda mótun dagskrárstefnu og megináherslur,“ sagði stjórnarformaðurinn.
Hann bætti við að hlutverk stjórnar snerist ekki eingöngu um eftirlit með rekstri og bókhaldi heldur bæri hún einnig ábyrgð á meginmarkmiðum félagsins.
RÚV undir aukinni smásjá
RÚV hefur sætt aukinni gagnrýni á síðustu misserum vegna nokkurra umdeildra mála.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur meðal annars til skoðunar aðkomu RÚV að byrlunar- og símamálinu svokallaða. Málið er enn á frumstigi hjá nefndinni og ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort ráðist verði í formlega úttekt.
Þá hefur Namibíumálið svokallaða áfram verið til umræðu, en það hófst með umfjöllun Kveiks í nóvember 2019 þar sem því var haldið fram að Samherji hefði stundað mútugreiðslur í Namibíu til að tryggja sér kvóta. Rannsóknir hafa staðið yfir um árabil bæði á Íslandi og í Namibíu.
Nýlega hefur einnig verið fjallað um samstarf RÚV við dönsku útgáfuna Berlingske í tengslum við umfjöllun um byrlunar- og símamálið.
Auglýsing