Fjöldi þeirra þingmanna breska Verkamannaflokksins sem vilja að leiðtoginn og forsætisráðherrann Keir Starmer fari frá er kominn upp í 86. Að sama skapi hafa yfir 100 þingmenn flokksins skrifað undir yfirlýsingu um stuðning við hann.
John Curtice, prófessor í stjórnmálafræði og stjórnmálaskýrandi hjá breska ríkisútvarpinu, segir Starmer aldrei hafa verið vinsælan leiðtoga. Fólk átti sig ekki á því hver framtíðarsýn hans sé.
Hart hefur verið sótt að Keir Starmer síðustu daga eftir slakt gengi í sveitarstjórnarkosningum í síðustu viku. Fjórir undirráðherrar hafa sagt af sér í dag.
Slagorðið var breytingar en lítið vitað hvaða breytingar
Curtice sagði í viðtali við fréttastofu í dag að helsta ástæða þess að svo hart væri sótt að Starmer væri sú að hann hefði aldrei verið vinsæll leiðtogi. Það væru dæmi um að leiðtogar hefðu lifað af eins slæma niðurstöðu kosninga og Verkamannaflokkurinn hlaut á dögunum.
Hvað Starmer varði hafi hann átt á brattann að sækja alla tíð síðan hann tók við embætti forsætisráðherra, ef frá eru taldir fyrstu dagarnir eftir kosningar 2024. Þá viti fólk ekki fyrir hvað hann standi, hvaða framtíðarsýn hann hafi fyrir Bretland né hver markmiðin hans séu.
„Slagorð Verkamannaflokksins fyrir kosningarnar 2024 var breytingar, punktur,“ segir Curtice. Ekki hafi verið útskýrt hverju ætti að breyta.
Þá segir Curtice að Starmer einblíni á lög og reglur, hann sé ekki með sérlega næmt „pólitískt loftnet“ og þessa stundina vitni hann í reglur flokksins um leiðtogaskipti. Curtice vísar í orð Starmers á ríkisstjórnarfundi um að svo lengi sem enginn skori hann á hólm, verði hann áfram í embætti.
Arftaki ekki í augnsýn
Til að knýja fram leiðtogakjör í Verkamannaflokknum þarf einhver þingmanna að tilkynna um framboð sitt og ákveðinn fjöldi þingmanna, 81, að styðja þann frambjóðanda. Curtice segir að helsti styrkur Starmers sem stendur sé að enginn frambjóðandi sé í augsýn. Talað hafi verið um Wes Streeting heilbrigðisráðherra, Angelu Rayner fyrrverandi varaforsætisráðherra og borgarstjóra Manchester, Andy Burnham, sem ekki á sæti á þingi.
Stuðningsmenn Streeting, sem tilheyra hægri væng flokksins, vilja að Starmer hætti strax. Stuðningsmenn Burnham, sem tilheyra vinstri vængnum og miðjunni, vilja aftur á móti að það verði leiðtogakjör í september og vona að í millitíðinni geti borgarstjórinn mögulega tryggt sér sæti á þingi í aukakosningum. Curtice telur að þessi sundrung geti mögulega orðið til þess að Starmer verði eitthvað lengur í embætti.