Jarðskjálfti af stærðinni 4,1 mældist við Nesjavelli, 36 mínútur yfir miðnætti. Hann fannst vel á suðvesturhorni landsins. Fréttastofu hafa borist tilkynningar frá fólki víða að af höfuðborgarsvæðinu sem fann skjálftann. Hann fannst einnig vel í útvarpshúsinu við Efstaleiti.
Nokkur eftirskjálftavirkni hefur fylgt.
Þetta er stærsti skjálftinn á Nesjavöllum frá árinu 1998, að því er segir í tilkynningu Veðurstofunnar. Þá mældist skjálfti af stærðinni 4,6 á svipuðum slóðum. Jarðskjálftavirkni er algeng á þessu svæði.
Fréttin verður uppfærð.