Sonur indversks milljarðamærings hefur boðist til að taka að sér flóðhestahjörð sem hefur plágað Kólumbíu í mörg ár.
Flóðhestahjörðin tengist alræmda eiturlyfjabaróninum Pablo Escobar en hann flutti framandi dýr ólöglega til landsins, þar á meðal einn karldýrs- og einn kvendýrsflóðhest. Escobar hélt flóðhestana á búgarði sínum, Hacienda Nápoles, lúxussetri sem staðsett er um 250 km norðvestur af höfuðborginni Bogotá.
Eftir að Escobar var skotinn til bana af lögreglu árið 1993 gekk flóðhestaparið lausum hala og fjölgaði sér meðfram aðalá Kólumbíu, Magdalenu. Stofninn stækkaði og ýmsar aðferðir voru reyndar til að halda honum í skefjum, þar á meðal gelding, án árangurs. Nú hefur verið ákveðið að fella um 80 dýranna.
Hvert líf skipti máli
Anant Ambani, sonur ríkasta manns Asíu, Mukesh Ambani, segist vera reiðubúinn að taka á móti dýrunum og annast þau í einkadýragarði sínum, Vantara, í Gujarat-fylki á Indlandi. Kólumbía hefur ekki brugðist við tilboðinu.
Forstjóri dýragarðs Ambani skrifaði bréf til umhverfisráðherra Kólumbíu þar sem hann sagði dýragarðinn reiðubúinn að veita hjörðinni ævilanga umönnun á Indlandi.
Í bréfinu, sem birt var á Instagram-reikningi dýragarðsins, sagði að kjarninn í tillögunni væri sú trú Vantara að hvert líf skipti máli. „Við berum sameiginlega ábyrgð á að vernda líf hvar sem þess er kostur,“ sagði einnig.
Gagnrýndur dýragarður
Í Vantara-dýragarðinum eru 2.000 dýrategundir, þar á meðal fílar og tígrisdýr. Garðurinn er 3.500 ekrur að stærð og er staðsettur í Jamnagar, skammt frá olíuhreinsunarstöð Mukesh Ambani sem er sú stærsta í heimi.
Dýragarðurinn hefur sætt gagnrýni frá dýraverndunarsinnum og náttúruverndarfólki af ýmsum ástæðum, þar á meðal vegna þess hve heitt og þurrt loftslag svæðisins hentar sumum dýranna illa.
Flóðhestahjörðin í Kólumbíu er talin sú stærsta utan Afríku. Kólumbískir umhverfisverndarsinnar segja flóðhestana vera ágenga tegund sem hafi útrýmt innfæddum dýrategundum á svæðum sem þeir haldi sig. Fiskveiðimönnum við Magdalena-ána hefur einnig stafað ógn af dýrunum sem eru gríðarlega árásargjörn og geta vegið allt að þrjú tonn.