„Við vorum sofandi en vöknuðum þegar slökkviliðsmennirnir komu og sögðu okkur að flýta okkur út eins hratt og við gátum,“ segir Eva Lind Magnúsdóttir, íbúi í Naustarbryggju 20, við mbl.is en allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var kallað út á tíunda tímanum vegna elds í þaki blokkar í Bryggjuhverfinu.
Spurð hvort margir íbúar í fjölbýlishúsinu hafi verið vaktir með þessum hætti segir hún:
„Ég veit það ekki alveg. Við búum á efstu hæð þannig að við hlupum bara niður en við vitum að íbúarnir á móti okkur voru held ég ekki heima en hundurinn þeirra var í íbúðinni en honum var bjargað.
Hún segir að það sé mjög skrýtið að sjá heimili sitt umkringt slökkviliðsbílum og lögreglubílum.
„Við erum á leiðinni á Kótilettuna sem er um helgina en bíðum eftir að ástandið lagist,“ segir hún.
