Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hófst í Ankara í Tyrklandi í gær en í forgrunni fundarins voru aukin framlög bandalagsríkja til varnarmála, jafnari skipting byrða og áframhaldandi stuðningur við Úkraínu. Fulltrúar Íslands á fundinum voru Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Sjá einnig: Trump fer hamförum í Ankara
Mest hefur þó farið fyrir Donald Trump sem hefur verið sérstaklega yfirlýsingaglaður. Á blaðamannafundi með Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í morgun sagði hann viðræður Bandaríkjanna við Íran komnar á endastöð og sagðist afar óánægður með bandalagið og einstaka ríki þess og lofaði á sama tíma Kina og Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands.
Við upphaf fundarins í gær ítrekaði hann að Grænland ætti að tilheyra Bandaríkjunum, sagði Danmörku ekki verja nægilegum fjármunum í að hjálpa Grænlandi og landið væri mikilvægt Bandaríkjunum.
Kristrún sagði ummæli Trump ekki þurfa að koma á óvar og sagðist vongóð um að farsæl lausn náist þar sem formlegur vinnuhópur bandarískra, danskra og grænlenskra stjórnvalda sé starfandi. Íslensk stjórnvöld væru skýr í sinni afstöðu þegar kæmi að málinu, Grænland tilheyrði Grænlendingum og þeir vildu ekki vera hluti af Bandaríkjunum.
Á myndbandi frá fundinum mátti síðan sjá þegar leiðtogarnir stilltu sér allir upp fyrir myndatöku. Að henni lokinni sneri Trump sér við, leit í kringum sig, tók í höndina á Kristrúnu og gekk svo út.