Kæfisvefn er talinn vera vangreint heilsufarsvandamál hjá börnum. Vandamálið hefur verið mikið rannsakað hjá fullorðnum og skýr og sönnuð tengsl eru milli ofþyngdar og kæfisvefns hjá þeim, en hefur aldrei áður verið mælt hjá börnum.
„Helstu niðurstöður okkar voru þá þessar: Kæfisvefn meðal barna, og börnin okkar voru á aldrinum 4-9 ára, var vangreindur. En 22,7% þessara 371 barns sem tók þátt í rannsókninni reyndist vera með kæfisvefn,“ sagði Hannes Petersen, háls- nef og eyrnalæknir og einn af umsjónarmönnum rannsóknarinnar.
Það var þverfaglegur hópur á vegum SAk sem rannsakaði svefn barna á aldrinum fjögurra til níu ára. Af þeim 22,7% barna sem greindust með kæfisvefn voru 6,5% þeirra með alvarlegan kæfisvefn og 16,2% með miðlungs-alvarlegan kæfisvefn.
Sömu tengsl hjá fullorðnum og börnum
Að mati rannsakenda eru skýr tengsl á milli ofþyngdar og kæfisvefns hjá börnum, líkt og fullorðnum: „Við sáum það í okkar rannsókn að yfirþyngd og offita fól í sér þrefalda hærri áhættu á að hafa miðlungs og slæman kæfisvefn“, sagði Hannes en bæði læknar, hjúkrunarfræðingar og prófessorar í næringarfræði komu að rannsókninni.
Ofþyngd er þó ekki eini áhættuþátturinn vegna kæfisvefns: „Það eru þarna aðrir þættir sem spila inní og hafa með að gera mögulega truflun á öndun barna. Það er þá ofnæmi og astmi,“ sagði Hannes Petersen.
Notast var við svefnmælitæki (hring) frá fyrirtækinu SleepImage í rannsókinni, sem byggir á 15 ára þróunarstarfi í samstarfi við Harvard-háskóla.