Veðurstofan varar við skriðuhættu á norðvestanverðu og norðaustanverðu landinu um helgina vegna mikillar úrkomu, einkum á Ströndum. Það haldi áfram að rigna fram á annað kvöld.
Unnur Blær A. Bartsch, skriðusérfræðingur á Veðurstofunni, segir ekki hægt að útiloka grjóthrun og minni skriður í bröttum hlíðum.
„Það hefur fallið skriða í dag á Ströndum sem fór á veg, líklegast neðan við Birgisvíkurfjall.“