Byssumaður sem hóf skothríð fyrir utan Hvíta húsið rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld lést af sárum sínum á sjúkrahúsi, að fram kemur í yfirlýsingu frá bandarísku leyniþjónustunni (FBI). Vegfarandi særðist í árásinni.
Maðurinn er sagður hafa dregið vopn upp úr tösku sinni og hafið skothríð, en leyniþjónustumenn skutu á hann á móti og hæfðu. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn. Enginn leyniþjónustumaður særðist í árásinni.
Atvikið er í rannsókn og eru frekari upplýsingar sagðar birtar þegar þær liggja fyrir.
Greint var frá því fyrr í kvöld að lögregla og öryggissveitir hefðu flykkst að svæðinu í kringum Hvíta húsið rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld eftir að tilkynnt var um skothvelli.
Heimildamenn CBS innan lögreglunnar sögðu að einstaklingur hefði skotið á leyniþjónustumenn og að þeir hefðu skotið á móti.
Sjónarvottar segjast hafa heyrt um 15 til 30 skothvelli.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, var í Hvíta húsinu á þeim tíma sem árásin var gerð, þar sem hann vann að samningaviðræðum við Íran. Aðeins er um mánuður síðan byssumaður hóf skothríð við inngang að hátíðarkvöldverði blaðamanna í Washington, þar sem Trump var gestur.
Samkvæmt yfirlýsingu frá Anthony Guglielmi, talsmanni leyniþjónustunnar, til CBS fréttastofunnar, segir að stofnunin hafi fengið tilkynningu um skothvelli nálægt 17. stræti og Pennsylvania Avenue NW. Svæðinu var lokað um tíma en lokuninni hefur nú verið aflétt.
Náði skothvellunum á upptöku
Fréttamenn sem voru á norðurflötinni við Hvíta húsið á þeim tíma sem skothvellirnir heyrðust sögðu á samskiptamiðlinum X að þeim hefði verið skipað að hlaupa og leita skjóls í blaðamannaherbergi Hvíta hússins.
Fréttakona ABC sem var í miðjum klíðum að taka upp efni náði skothvellunum á upptöku, en henni varð mjög hverft við, eins og sjá má á meðfylgjandi færslu af X.
„Þetta hljómaði eins og á annan tug byssuskota. Okkur var sagt að hraða okkur í blaðamannaherbergið, þar sem vð erum núna,“ segir fréttakonan, Selina Wang, í færslunni.
Fréttin hefur verið uppfærð.




