Hilmar Veigar Pétursson, einn stofnenda og forstjóri Fenris Creations, áður CCP Games, kom að áhugaverðu verkefni í Bretlandi: könnun á möguleikum þess að varðveita David Attenborough í stafrænni útgáfu með einhverjum hætti.
Attenborough fagnar 100 ára afmæli sínu í dag. Hann er af mörgum talinn einn áhrifamesti maður samtíðarinnar. Hann hefur starfað við sjónvarp í fjölda áratuga og er í dag þekktur sem aðgerðasinni og fyrir náttúrulífsþætti.
David Attenborough yrði ekki sá fyrsti til að vera endurlífgaður með stafrænum hætti. Einn áhrifamesti myndasöguhöfundur allra tíma, Stan Lee, hefur til að mynda verið endurgerður með gervigreind. Hinn stafræni Stan er fluttur ráðstefna á milli þar sem aðdáendur geta spurt hann spurninga.
Stafrænar endurgerðir af þekktu fólki eru ekki alveg nýjar af nálinni. Það vakti nokkra athygli árið 2012 þegar heilmynd af rapparanum Tupac Shakur steig á svið á tónlistarhátíðinni Coachella, 16 árum eftir að hann var skotinn til bana.
Hilmar Veigar oft kallaður inn af stjórnvöldum í Bretlandi
Hilmar Veigar var gestur Atla Fannars Bjarkasonar og Guðrúnar Dísar Emilsdóttur í Morgunútvarpinu í dag þar sem hann sagði frá þessu sérkennilega verkefni.
„Ég er nú búinn að búa þarna í London í nokkur ár og maður er oft kallaður inn af... bara stjórnvöldum í Bretlandi í alls konar áhugavert dót,“ segir Hilmar Veigar.
Eitt sinn hafi hann verið fenginn til að koma að því verkefni að varðveita David Attenborough eftir að aðgerðasinninn verður allur.
„Þetta var svona opin könnun á málinu, að varðveita David Attenborough sem einhvers konar stafræna útgáfu. Það var einhver samblanda af tölvuavatörum, gervigreind og alls konar margþætt dæmi. Þetta var ekkert grín, sko.“
Hilmar Veigar segir þetta þó ekki hafa beinlínis staðið til.
„Fólk var bara svona að þreifa fyrir sér og hvaða möguleikar væru í stöðunni. Hvað væri nú ekki, eins og krakkarnir segja, cringe að gera.“
Enska hugtakið cringe mætti einfaldlega þýða sem hallærislegt. Það vísar til þeirrar tilfinningar sem virkilega hallærislegir hlutir vekja hjá fólki.
Fólkið sem ætlar að lifa að eilífu sem tölva
Þá segir Hilmar Veigar að meðal annars hafi verið kannað hvers konar endurgerð Attenborough fólk myndi taka í sátt, og hann sjálfur sömuleiðis.
„Þetta var alvöru skoðun á málinu. Af því við vorum að tala um San Fransisco, þar er náttúrulega alveg mikið af stórskrýtnu fólki. Það er alveg sérstakur hópur sem kallast the downloaders (e. niðurhalararnir) sem er fólkið sem ætlar að downloada sjálfum sér áður en það deyr. Þetta er bara eitthvað sem fólk er að vinna í.“
Þá segir Hilmar Veigar mega tengja niðurhalarana við Neuralink, tækni sem Elon Musk er að þróa. Þeir Hilmar og Musk funduðu einmitt á síðasta ári.
„Elon Musk sjálfur er með Neuralink, þar sem hann er að setja tölvutengi inn í heilann á fólki. Fólk er bara að gera plön og [safna peningum] til að geta downloadað sjálfum sér.“
Lifað að eilífu sem tölva?
„Já, lifað að eilífu sem tölva,“ segir Hilmar Veigar.
Fjallað var um David Attenborough í Heimskviðum síðustu helgi. Hér er hægt að hlusta á þáttinn í heild sinni: