Á meðan Greta Thunberg hefur orðið eitt þekktasta andlit loftslagsaðgerða í heiminum hefur yngri systir hennar, söngkonan Beata MonaLisa, farið allt aðra leið.
Hin tvítuga Bea, eins og hún er gjarnan kölluð, ræddi nýlega við Interview Magazine þar sem hún lagði áherslu á tónlistarferil sinn en hafði lítinn áhuga á að ræða eldri systur sína eða loftslagsmál.
„Ég ber ekki ábyrgð á lífi annarra“
Þegar hún var spurð út í Gretu og umfjöllunina sem fylgt hefur henni svaraði Bea stuttlega:
„Ég ber ekki ábyrgð á lífi annarra.“
Bea segir að hún hafi dansað frá því hún gat gengið og sungið frá sjö ára aldri. Hún lýsir sér sem sjálfmenntaðri söngkonu og segir að áhuginn hafi orðið til þess að hún varð fyrir einelti á skólaárunum.
Hún vinnur nú að fyrstu plötu sinni sem hún hefur verið að semja frá þrettán ára aldri. Á plötunni verða níu lög sem hún hefur öll samið sjálf.
Samkvæmt henni fjallar platan meðal annars um frelsi einstaklinga til að skilgreina eigin sjálfsmynd og um valdeflingu kvenna.

Gagnrýnir karllægan tónlistarbransa
Í viðtalinu sagði Bea einnig að hún hefði oft lent í því að karlkyns tónlistarframleiðendur reyndu að stjórna því hvernig hún syngi.
Hún telur að ungar konur sem tjá sig af öryggi geti verið ögrandi fyrir suma í tónlistarheiminum sem vilji stjórna ungum söngkonum.
Allt önnur ímynd en Greta
Á samfélagsmiðlum birtir Bea gjarnan myndir og myndskeið þar sem hún syngur, dansar og kemur fram á ögrandi hátt. Hún hefur þegar eignast nokkuð stóran aðdáendahóp og segist leggja meiri áherslu á að eiga náið samband við aðdáendur sína en að ná sem mestri frægð.
Þótt systurnar hafi alist upp á sama heimili virðast þær því hafa valið gjörólíkar leiðir í lífinu.
View this post on Instagram