Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hætti sundi sínu niður Lagarfljót rétt við brúna milli Egilsstaða og Fellabæjar á fjórða tímanum.
Hann hafði synt um 23 kílómetra á þrettán og hálfum klukkutíma. Stöðva þurfti sundið vegna nuddsárs sem Sigurgeir hlaut á hægri hönd.
„Hann missir eiginlega máttinn í hægri hendinni þannig að hann getur ekki beitt henni. Það versnar náttúrlega hratt eftir að þetta byrjar. Mér fannst ekki öruggt að fara með hann niður í strauminn með aðra höndina ekki í lagi,“ segir Árni Geir Bergsson, sem er í fylgdarliði Sigurgeirs.
Hann segir sundkappanum líða vel miðað við aðstæður. „Hann er góður og verður góður, ég hef enga trú á öðru. Það var enginn kuldi í honum. Ég held hann verði fljótur til baka aftur.“
Árni segir þó að sundinu verði ekki fram haldið. „Ég held að glugginn sé bara búinn,“ segir hann.
Byrjaði að synda í nótt
Sigurgeir stakk sér til sunds stuttu fyrir klukkan tvö í nótt og hóf tilraun sína til að synda Lagarfljótið endilangt. Hann synti til að safna fé fyrir Píeta-samtökin.
Þegar fréttastofa náði tali af Árna Geir um hádegið gekk sundið mjög vel.
„Ég hef fulla trú á að þetta takist. Minn maður er það heitur. Ég synti með honum áðan og hitastigið á fljótinu er það gott að ekkert inni í mér segir mér að hann klári þetta ekki,“ segir hann.
Sigurgeir reyndi við þrekraunina í júní en þurfti að láta staðar numið eftir 15 kílómetra vegna ofkælingar. Hann hóf sundið þar sem hann nam staðar síðast.
Var að nálgast brúna hjá Egilsstöðum
Sigurgeir var að synda um 1,5 kílómetra á klukkustund en hann fór upp í um 2–2,5 eftir hádegið. „Það er mjög flottur meðalhraði,“ segir Árni.
Hann segir Sigurgeir hafa verið mjög góðum gír framan af. „Hann er glaður, ferskur og það er hiti í honum. Hann er aðeins farinn að finna fyrir þreytu í höndunum,“ segir Árni sem bætir við að það sé ekki að undra eftir meira en 12 tíma sund.
Fréttin hefur verið uppfærð.