Sigríður Ásthildur Andersen, þingmaður Miðflokksins, furðar sig á framkvæmdum við Laugaveg við Hlemm.
„Ég verð að játa það að ég átta mig bara ekki á út á hvað þessar miklu framkvæmdir hafa gengið hér. Gott að fá ykkar álit á því, út á hvað gengur þetta?“
spyr Sigríður í myndbandi sem hún tók af sjálfri sér þar sem hún stóð á Laugavegi við Hlemm í hádeginu á þriðjudag.
„Hér eru vissulega sæti. Hér er síðan eitthvað sem ég skil ekki öðruvísi en sé sæti fyrir risa, þannig að ég ætla ekki að setjast hér. Þarna er eitthvað óskilgreint járnaverk. Hádegi á virkum degi, hér er ekki kjaft að sjá.“
Ekki er það alveg rétt hjá Sigríði því auk hennar má sjá sex manneskjur, þar af eina þeirra ökumann sem leggur ólöglega við Hlemm. En vissulega afar fáir á ferli.
Sigríður stendur eins og áður segir á Laugavegi, þar sem eru húsnúmer 101-105 og 114-118. Er hér aðeins um að ræða hluta af framkvæmdum við Hlemmsvæðið, því einnig er Hlemmur sjálfur auk Hverfisgötu og Rauðarárstígs við lögreglustöðina og Rauðarárstígs við hótelið Miðgarð og Myndlistarskólann hluti af framkvæmdasvæðinu. Framkvæmdir hófust haustið 2023 og er enn ekki lokið.

Líflegar umræður hafa skapast við myndbandið:
„Ég myndi hlæja ef ég hefði ekki borgað fyrir þetta….“, segir rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson.
„Og búið að taka um þrjú ár að gera þetta að „fjölskyldutorgi“, segir kona nokkur. „Eyðimörk með járnarusli ekki sála á ferð“, segir önnur. „Man nú ekki öðruvísi en eftir þessum götuspotta iðandi af lífi og umferð. Þetta er fagleg eyðibýlastefna,“ skrifar karlmaður
„Rigning og leiðinda veður,kannski Sigga fari þarna á fallegum laugardegi“, segir Jón Rósmann Mýrdal. Hrannar Pétursson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, svarar honum: „Ég labba þarna um síðdegis á hverjum degi. Það er vissulega fólk á ferðinni og labbar eftir þessari götu, en aldrei vottur af mannlífi í þeim skilningi sem stefnt var að.“
„Þess utan að auka umferð um Bríetartún og Grettisgötu austur. Sem eru íbúagötur/hjá leiðir. Markmið Samfylkingarinnar er að lama Laugarveg, banna umferð, banna Airbnb osfrv, segir einn.“
„Bùid að rùsta miðbænum allt ì boði meðal annars dags b og co og fleiri aðila“, segir annar.

Benda má á að samkvæmt skiptingu borgarinnar í borgarhluta er Hlemmur ekki hluti af miðbænum eða Miðborginni, heldur tilheyrir hann Hlíðum. Lögreglustöð 1 og Rauðarárstígur sem liggur þar við tilheyrir hins vegar Laugardal.
Sigríður bætir við: „Og svo er mér sagt: Og svo var aðalskiptistöði fyrir strætó á Hlemmi lokað þannig nú er orðið mjög pirrandi að skipta um strætó sem stoppa ekki á sama stað. Þá labba frá Snorrabraut að Rúgbrauðsgerðinni og öfugt og missa af strætó þar sem ekki er gert ráð fyrir labbinu á milli í leiðakerfinu.“