Bandaríkin hafa tilkynnt um viðskiptaþvinganir á 10 einstaklinga og fyrirtæki fyrir að styðja við vopnaframleiðslu Írana. Reuters fréttaveitan segir að viðskiptaþvinganirnar nái til einstaklinga og fyrirtækja sem eru meðal annars staðsett í Kína og Hong Kong.
Bandaríska fjármálaráðuneytið segir viðskiptaþvinganirnar vera vegna viðskipta með vopn og búnað fyrir meðal annars Shahed-dróna og flugskeyti. Greint var frá þessu í gær, aðeins nokkrum dögum áður en Donald Trump Bandaríkjaforseti fer í opinbera heimsókn til Kína og fundar með leiðtoga Kína Xi Jinping í Peking 14. og 15. maí.