Jeff Landry, ríkisstjóri Louisiana og sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar í málefnum Grænlands, kom til Nuuk um miðjan dag í dag.
Samkvæmt fréttum danska ríkisútvarpsins ætlar Landry að taka þátt í ráðstefnunni Future Greenland, sem Viðskiptaráð Grænlands stendur fyrir. Hann er ekki gestur ráðsins en er hluti föruneytis Ken Howery, sendiherra Bandaríkjanna.
Við komuna sagði Landry forsetann Donald Trump hafa hvatt sig til ferðarinnar og reyna að eignast eins marga vini og mögulegt væri. Tilgangur heimsóknarinnar væri að skapa tengsl; hann vildi hlusta og læra hvernig hægt væri að treysta samband Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur.
Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnarinnar, kveðst ætla að hitta Landry í dag. Trump skipaði Landry sérstakan erindreka fyrir Grænland í desember og sagði hann munu vinna að hagsmunum Bandaríkjanna með öryggi þeirra og heimsins alls að leiðarljósi. Trump hafði þá ítrekað lýst vilja sínum til að innlima Grænland.