Sendiherra Indlands á Íslandi er R. Ravindra en hann tók við embættinu í desember 2024. Sveinn Andri Sveinsson lögmaður gætir hagsmuna fjögurra af þeim að minnsta kosti sjö sem standa í deilum við sendiherrann. Þeir eru allir staðarráðnir starfsmenn en þeirra á meðal eru Íslendingar, Indverjar og fólk frá öðrum ríkjum.
Sendiherrann er sakaður um að brjóta reglur íslensks vinnuréttar. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru starfsmennirnir á kjörum sem eru lakari en það sem íslenskir kjarasamningar kveða á um. Sveinn Andri segir að sendiráðið hafi endurnýjað vinnusamninga við staðarráðið starfsfólk og kjör þeirra skert.
„Sem náttúrulega gengur ekki vegna þess að þegar fólk er búið að vera í mörg ár með tiltekin kjör þá getur vinnuveitandinn ekki einhliða tekið þau kjör af. Þetta eru að mörgu leyti skrítnar reglur sem þarna gilda um bæði vinnutíma, hvíldir, sumarfrí og svo framvegis. Þannig að þetta ágæta starfsfólk leitaði til okkar og við höfum líka verið í sambandi við VR af því að fólkið vill vera í VR en sendiráðið meinar því að vera þar,“ segir Sveinn Andri.
Og bætir við að jólabónusinn hafi verið tekinn af starfsfólki.
„Þrátt fyrir að hann hafi verið í mörg ár og orðinn fastur hluti af kjörum viðkomandi starfsmanna.“
Veistu meira um málið? Ertu með fréttnæma ábendingu? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullri nafnleynd heitið.
Þurfti að senda barn sitt úr landi
Þá hafi starfsmenn í sumum tilvikum ekki fengið að taka fæðingarorlof.
„Staðarráðinn starfsmaður sem er af indverskum uppruna þurfti að senda barn sitt til Indlands þar sem hann fékk ekki fæðingarorlof.“
Sveinn Andri lýsir ákveðinni ógnarstjórn á vinnustaðnum en sendiherrann hóti því að segja fólki upp ef það reyni að leita réttar síns eða sækja kjarasamningsbundin réttindi og hefur nokkrum borist áminningarbréf.
„Hann lítur á það sem agabrot að fólk vilji vera í stéttarfélagi.“
Íslenskar reglur gildi um hópinn
Í öllum sendiráðum starfa annars vegar útsendir starfsmenn og hins vegar staðarráðið starfsfólk. Síðarnefndi hópurinn er undir í þessu máli. Íslensk lög ná ekki yfir starfsemi erlendra sendiráða vegna ákvæðis um friðhelgi sendiráða en slíkt á einungis við um starfsfólk sendiráða sem er útsent.
Sveinn Andri segir að í tilviki staðarráðinna starfsmanna sendiráða gildi alþjóðlegir sáttmálar sem kveða á um að þegar það á í hlut gildi kjarasamningar og reglur á vinnumarkaði í viðkomandi ríki. Þannig gilda lög og reglur á íslenskum vinnumarkaði í tilviki þeirra staðarráðnu starfsmanna sem starfa í sendiráðinu hér á landi.
„Um kaup og kjör þess gilda íslensk lög og íslenskir kjarasamningar,“ segir Sveinn Andri í samtali við fréttastofu.
Segir fólki upp
Þær reglur hafi að sögn Sveins Andra verið áréttaðar í bréfi til allra sendiráða, þar á meðal indverska sendiráðsins.
„Svo veit ég að vegna umkvartana minna og minna umbjóðenda hefur ráðuneytið átt fund með sendiherranum og áréttað við hann að svona séu lögin. En hann lætur ekki til segjast og er byrjaður að segja fólki upp. Þetta er grafalvarlegt mál.“
Fólkið eigi rétt á að ganga í stéttarfélag
Í skriflegu svari frá Höllu Gunnarsdóttur formanni VR við fyrirspurn fréttastofu um málið segir að starfsfólk sendiráða eigi rétt á að ganga í stéttarfélag eins og annað launafólk á Íslandi.
„Sá réttur er ekki eingöngu varinn í íslenskum kjarasamningum og stjórnarskrá heldur líka í alþjóðlegum mannréttindasáttmálum.“
Störf í sendiráðum falli undir skrifstofustörf og séu þar af leiðandi innan félagssviðs VR.
„Innan okkar raða er fjölmargt starfsfólk sendiráða og oft höfum við átt gott samstarf við ólík sendiráð um að tryggja réttindi og kjör starfsfólks. Ég treysti því að indverska sendiráðið leiðrétti þessi mál gagnvart sínu starfsfólki og tryggi að það njóti þeirra kjara og réttinda sem gilda á Íslandi,“ segir í tilkynningunni.
Læsti skrifstofum starfsfólks
Sveinn Andri segir umbjóðendur sína lýsa því hvernig þeir hafi ekki komist inn á skrifstofur sínar þar sem sendiherrann hafi læst þeim á vinnutíma.
„Starfsmaðurinn bara komst ekki inn á skrifstofuna sína og þurfti að bíða eftir að honum [sendiherranum] þóknaðist að opna skrifstofuna.“
„Þessi ágæti sendiherra er greinilega ekki hæfur til að gegna starfinu, það er nokkuð ljóst.“
Sveinn Andri segir að utanríkisráðuneytið hafi gert sendiráði Indlands grein fyrir því að staðan sé óviðunandi.
Utanríkisráðuneytið fer með málefni sendiráða á Íslandi. Fréttastofa hafði samband við utanríkisráðuneytið vegna málsins. Í skriflegu svari frá ráðuneytinu segir:
„Utanríkisráðuneytið er upplýst um stöðuna og á í samskiptum við sendiráð Indlands á Íslandi. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.“
Næst á dagskrá að senda formlega kvörtun
Sveinn Andri segir stöðuna þannig að annaðhvort muni hann sem lögmaður hópsins eða utanríkisráðuneytið beina kvörtunum til utanríkisráðuneytisins í Nýju-Delí.
„Þar sem gerð verður grein fyrir þessum þráfaldlegu og ítrekuðu brotum sendiherrans á íslenskri löggjöf.“
Sveinn Andri segir að ef þau samtöl bera ekki árangur sé sá möguleiki á borðinu að starfsfólkið leiti til dómstóla.
Veistu meira um málið? Ertu með fréttnæma ábendingu? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullri nafnleynd heitið.