Nú styttist í að framkvæmdir við nýtt tjaldsvæði á Selfossi hefjist í landi Hellis við Hellisskóg á Selfossi, en svæðið er á milli Olís á Arnbergi og byggðarinnar fyrir utan á eins og hún er oftast nefnd. Áður fyrr hafði verið gert ráð fyrir að á þessu svæði yrði kirkjugarður. Þarna er stutt að fara í miðbæ Selfoss, á íþróttasvæðið og golfvöllinn.
Sveinn Ægir Birgisson, formaður Eigna- og veitunefndar Árborgar, sem hefur m.a. með málið að gera.
„Það er ekki gert ráð fyrir að svæðið sé víkjandi á skipulagi fyrir íbúabyggð, svo um varanlega lausn er að ræða. Svæðið er nálægt allri þjónustu og með tilkomu þess mun myndast nýtt og frábært útivistarsvæði með góðu stígakerfi sem mun tengja Hellisskóg og nýrri Ölfusárbrú,“ segir Sveinn Ægir og bætir við: „Við erum að byrja núna strax í sumar með lagningu vegar inn á svæðið að nyrsta hlutanum upp við nýjan Suðurlandsveg. Þar verður gert ráð fyrir tjaldsvæði fyrir stærri samkomur eins og gesti Kótilettunnar og Unglingalandsmót UMFÍ.
Ekki er komin tímalína á hvenær verkið eigi að vera klárt. Við erum að auglýsa deiliskipulagið og óska eftir athugasemdum. Ljóst er að fara þarf í einhverja jarðvinnu og landmótun á svæðinu, ásamt skógrækt.“
Ekki vitað um kostnað
Sveinn Ægir segir að kostnaður við framkvæmdina liggi ekki fyrir að undanskilinni hönnun og vegagerð inn á svæðið.
En verður núverandi tjaldsvæði við Gesthús á Selfossi lokað eða hvað?
„Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um það. Eins og heimamenn þekkja höfum við haft annað hátíðartjaldsvæði við Suðurhóla fyrir stærri viðburði á Selfossi. Þá má koma fram að við höfum bætt við undirgöngum undir nýjan Suðurlandsveg sem verður til við tilkomu nýrrar brúar til að geta tengt þetta svæði enn betur við Hellisskóg.