„Bandaríkin eru ekki lengur í þeirri stöðu að þau geti þvingað stefnu sína upp á sjálfstæð ríki,“ sagði Reza Talaei-Nik, varavarnarmálaráðherra Írans í dag. Hann sagði að Bandaríkjastjórn yrði að draga til baka ólögmætar og órökréttar kröfur sínar.
Talaei-Nik sagði að Íranar væru reiðubúnir að deila hernaðartækni sinni með öðrum ríkjum.
Vopnahlé er enn í gildi í stríði Írana og Bandaríkjamanna. Olíuverð hækkaði í morgun og hlutabréfaverð lækkaði. Sú þróun er rakin til frétta af því að Bandaríkjastjórn hafi ekki brugðist við tillögum Íransstjórnar um mögulegt samkomulag.