Samið hefur verið um myndun meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Bæjarfulltrúar S-lista, Samfylkingar og óháðra og D-lista, Sjálfstæðisflokks og óháðra undirrituðu samkomulag sem byggir á stefnuskrám beggja framboða í Samkomuhúsinu í Sandgerði í dag. Auglýst verður eftir bæjarstjóra.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir jafnframt að áður en samkomulagið var undirritað hafi oddvitar beggja framboða, Svavar Grétarsson, S-lista og Haukur Andreasson, D-lista, tekið til máls og meðal annars rætt að í samkomulaginu sé áhersla lögð á að styrkja stöðu Suðurnesjabæjar, lækka álögur á íbúa og bæta lífsgæði allra íbúa með það að leiðarljósi að móta samfélag fyrir alla.
„Þá verður áframhaldandi vinna lögð í sameiningu byggðakjarnanna tveggja í Suðurnesjabæ eftir sameiningu árið 2018. Þá verður sérstök áhersla lögð á að hefja uppbyggingu íþróttamannvirkja framtíðarinnar, málefni barnafólks, fatlaðra og eldri borgara. Oddvitarnir tóku báðir fram að þeir vilji leggja áherslu á gott samstarf allra bæjarfulltrúa á kjörtímabilinu og munu leggja áherslu á gott upplýsingaflæði með það að leiðarljósi að allar áætlanir og eftirfylgni verði með sem besta móti,” segir þar enn fremur.
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar verður 3. júní og til stendur að auglýsa stöðu bæjarstjóra.
