Samhjálp hefur þegar nánast lokið vinnu við að innrétta húsnæði að Grensásvegi 44, sem nota átti undir kaffistofu Samhjálpar.
Þetta segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, í samtali við mbl.is.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ógilti í gær ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar um að Samhjálp fengi að setja kaffistofuna á fót í húsnæðinu. Hafði staðsetningin vakið upp töluverðar áhyggjur meðal íbúa í hverfinu.
Lögfræðingur kominn í málin
Framkvæmdastjórinn segir það töluvert áfall að ákvörðun byggingarfulltrúans hafi verið felld úr gildi. Nú þurfi hins vegar að vega og meta hver næstu skref verða. Samhjálp er búin að fá lögfræðing í málið sem ætlar að ráðleggja hvernig hægt sé að bregðast við.
Segir Guðrún að framkvæmdir við húsnæðið að Grensásvegi 44 hafi verið komnar svo langt á veg að í raun hefði verið hægt að opna kaffistofuna strax og búið væri að taka út staðinn.
„Við vorum nánast búin að ljúka framkvæmdum og komin með bráðabirgðaeldhús, og svo átti nýtt eldhús að koma núna í júlí. Við vorum komin með öll tæki nema þau sem eru í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu, þar sem við erum núna með neyðarhúsnæði á meðan við vorum að gera upp húsnæðið við Grensásveg.“
Guðrún á fund með Hildi Björnsdóttur borgarstjóra á morgun og vonast hún til þess að hægt sé að finna farsæla lausn á málinu.
„Þetta gengur ekki endalaust“
Fíladelfíukirkjan hýsir nú kaffistofuna tímabundið og hefur gert síðan í byrjun október. Guðrún segir að upprunalega hafi kaffistofan aðeins átt að vera þar í tvo mánuði.
„Við erum ótrúlega heppin og gæfusöm með þá velvild sem Hvítasunnukirkjan hefur sýnt okkur, að skjóta yfir okkur skjólshúsi. Það gengur ekki endalaust, þetta er samfélagsþjónusta á ábyrgð opinberra aðila. Það er ekki hægt að ætlast til þess að við séum bara upp á gæsku kirkjunnar komin.
Þetta hefur dregist úr hófi, borgin var lengi að ákveða að senda okkur í grenndarkynningu og lengi að afgreiða málin eftir grenndarkynninguna. Þetta gengur ekki svona endalaust og það er ekki hægt að bara ætlast til þess að Hvítasunnukirkjan skjóti endalaust yfir okkur skjólshúsi.“