„Sam­fylkingin í Reykja­vík er kvenna­gildra“ - Vísir

„Sam­fylkingin í Reykja­vík er kvenna­gildra“ - Vísir

„Sam­fylkingin í Reykja­vík er kvenna­gildra“ - Vísir

Fjöldi oddvita vill innleiða heimgreiðslur og leyfa vinnustaðaleikskóla. Aðrir vilja meiri fókus á uppbyggingu borgarrekinna leikskóla og bætt laun, kjör og starfsaðstæður starfsfólks. Þá nefndu margir lengingu fæðingarorlofs en það er á ábyrgð ríkisins.

Pétur var fyrst spurður um það hvað hann ætlaði að gera fyrst hann vildi ekki leyfa fyrirtækjaleikskóla eða heimgreiðslur. Hann sagði vandamálið við leikskólakerfið að viðhaldi hefði ekki verið sinnt og að það hefði verið erfitt að manna þá. Hann sagði það „þrotaða lausn“ að fá fyrirtæki til að leysa vandann. Hann sagði breytingar í vændum og nefndi til dæmis að Samfylkingin vilji setja aukafjármögnun í mönnun og starfsaðstæður á leikskólum. Þau vilji taka við 1.500 börnum og taka við yngri börnum. Hann sagði stóra verkefnið að brúa bilið frá fæðingarorlofi að leikskóla.

Allir oddvitar eru sammála um að ekki sé staðið vel að leikskólamálum í Reykjavík. Sýn

Það hafi ekki gengið á þessu kjörtímabili en hann hafi trú á því að það geti gerst á næsta kjörtímabili. Þá standi til að lögfesta leikskólastigið á Alþingi og þó svo að áhrif þess muni taka mörg ár muni það hafa áhrif.

Hann sagði meiri fyrirsjáanleika með Reykjavíkurleiðinni en að það ætti eftir að koma meiri reynsla á hana.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, greip þá orðið og varaði við málflutningi Samfylkingarinnar. Þau boði lögfestingu leikskólastigs og 1.500 ný pláss en 600 milljónir í starfsfólkið og starfsaðstæður á ári. Hún sagði þetta um 60 stöðugildi sem manni um 250 pláss en eftir séu 1.250 pláss.

„Þetta er plan sem stemmir ekki.“

Hildur sagði að leikskólavandinn yrði aldrei leystur með því að lögfesta leikskólastigið. Það vanti 2.400 leikskólakennara á Íslandi og þau hafi séð að með einu leyfisbréfi hafi mikill fjöldi þeirra fært sig á grunnskólastigið. Hún segir ekki eina lausn á málinu og nefndi sem dæmi fyrirtækjaleikskóla og nýtt daggæslustig.

Leikskólakerfi sem ekki virkar

„Við erum stolt af leikskólakerfinu okkar, en það er ekki alveg að virka,“ sagði hún og að nýtt daggæslukerfi fyrir yngstu börnin væri hagkvæmari lausn og raunhæfari.

„Við styðjum líka heimgreiðslur og þá segir Samfylkingin að það sé kvennagildra. Samfylkingin í Reykjavík er kvennagildra,“ sagði þá Hildur og að með því að leysa ekki leikskólavandann á kjörtímabilinu hafi það gert það að verkum að fjöldi kvenna sitji fastur heima.

Pétur sagði þá að með fyrirtækjaleikskólum væri verið að opna á tvöfalt kerfi sem honum hugnast ekki, kerfi sem nýtist þeim sem vinna hjá ákveðnum fyrirtækjum eða eiga meiri pening.

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, sagði það markmið að eyða biðlistum í leikskóla og gagnrýndi að Samfylkingin ætlaði að beita sömu lausnum og áður og vonast eftir betri lausn. Hann sagði þurfa nýjar lausnir samhliða því að reka sterkt leikskólakerfi. Hann nefndi í því samhengi fyrirtækjaleikskóla og sagði þann sem stendur á móti svona hugmynd aldrei hafa þurft að taka á móti tugum mótmælandi foreldra sem ekki fengu pláss fyrir börn sín. Hann sagði Framsóknarflokkinn styðja heimgreiðslur og nefndi breytingu sem innleidd var á kjörtímabilinu þannig að foreldrar barna sem eru 18 mánaða og eldri fái aukna niðurgreiðslu séu börn þeirra enn hjá dagmæðrum og enn á bið eftir leikskólaplássi.

Grundvallarmunur á fæðingarorlofi og heimgreiðslum

Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar sagði að enginn væri að tala um vinnustaðaleikskóla ef leikskólamálin í Reykjavík væru í góðum málum. Það þurfi fjölbreyttar lausnir og svigrúm í kerfið. Hún sagði grundvallarmun á fæðingarorlofi og heimgreiðslum því að í fæðingarorlofi séu öll réttindi á vinnumarkaði tryggð, það sé ekki svo þegar foreldrar þiggja heimgreiðslur. Hún sagðist frekar styðja lengingu fæðingarorlofsins en það væri á ábyrgð ríkisins.

„Ef sveitarfélagið tekur upp heimgreiðslur þá erum við að lengja fæðingarorlofið án allra réttinda hjá nýbökuðum foreldrum,“ sagði Björg og að fjárhagur þeirra myndi skaðast enn frekar. Hún sagðist styðja vinnustaðaleikskóla og fleiri úrræði fyrir yngstu börnin.

Sanna greip þá orðið og sagði Einar tala þannig að það sem gerist í borginni sé alltaf einhverjum öðrum að kenna. Öll sem eru í meirihluta beri ábyrgð og þau eigi að leitast við að sannfæra aðra í meirihluta um að verkefnið sé góð hugmynd. Hún sagði vitað að foreldrar búi við mikið álag og að samstarfsflokkarnir hafi innleitt Reykjavíkurleiðina til að bregðast við. Það eigi eftir að meta áhrif leiðarinnar og sjá hvað kemur út úr henni.

Sanna sagði nauðsynlegt að bæta starfsaðstæður og laun og tryggja að starfsfólk hefði allt sem það þarf til að sinna sinni vinnu. Hún vill því setja meiri peninga í rekstur leikskólanna og viðhald frekar en í fyrirtækjaleikskóla og heimgreiðslur.

Lenging fæðingarorlofsins lausnin

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, sagði getuleysi borgarinnar í þessum málaflokki ótrúlegt. Hann segir flokkinn styðja við heimgreiðslur og fjölbreytt rekstrarform fyrirtækjaleikskóla og daggæslu. Þá sagðist hann vilja skoða það að fólk njóti réttinda á borð við það sem það nýtur á meðan það er í fæðingarorlofi, sem Björg nefndi.

„Vilji er allt sem þarf,“ sagði Ari og að það væri engin ein lausn.

Kristinn Jón Ólafsson, oddviti Pírata, sagði þetta fyrstu árin í lífi barnanna og þau væru jafnframt þau mikilvægustu. Það væri þörf á að finna lausnir og að í hans draumaheimi væru leikskólakennarar með bestu launin. Hann sagði þörf á að lengja fæðingarorlofið í 15 til 18 mánuði og að leikskólastigið væri lögfest. Hann sagði einnig þurfa að skapa jákvæða hvata fyrir leikskólakennara, eins og að niðurgreiða nám þeirra, og að gefa þeim svigrúm til að sinna sínu hlutverki á vinnutíma. Þá sagði hann þurfa að efla íslenskukennslu fyrir þau sem ekki eru með íslensku sem fyrsta mál og bæta starfsaðstæður þeirra og kjör. „Þetta er ekki rekstrarvandi, eins og svo margir benda á, þetta er mannauðsvandi,“ sagði Kristinn.

Flokkur fólksins hefur boðið einingahús við leikskóla til að fjölga plássum og Guðmundur Ingi segir að eftir að hafa sinnt trúnaðarstöfum fyrir Eflingu viti hann vel að það er svigrúm til að bæta kjör ófagmenntaðs leikskólastarfsfólks. Flokkur fólksins vilji bæta starfsaðstæður kennara. Hann segir flokkana sem nú eru við völd ekki hafa áhuga á að leysa bráðavandann núna, heldur aðeins til lengri tíma. Flokkur fólksins sé hlynntur vinnustaðaleikskólum og heimgreiðslum á meðan unnið er að bráðavandanum í kerfinu.

Verði að styðja betur við ófaglært starfsfólk

Silja Sóley, oddviti Sósíalistaflokksins, sagðist hafa sterkar skoðanir sem fyrrverandi starfsmaður leikskóla. Það sé þörf á uppbyggingu og viðhaldi en hluti vandans felist í mannauði. Það sé mikið talað um leikskólakennara en minna um ófaglært starfsfólk. Það sé mikil starfsmannavelta og kjör þeirra séu bág. Þau þurfi, sem dæmi, einnig undirbúningstíma því víða séu ekki endilega fagmenntaðir kennarar á deildum til að skipuleggja starfið.

Silja Sóley sagði að lokum mikilvægt að snúa umræðunni og tala meira um lengingu fæðingarorlofsins. Þetta sé viðkvæmt tímabil fyrir ung börn og mikilvægt að þau séu með sínum nánustu. Hún segir flokkinn styðja heimgreiðslur en að það verði að tryggja réttindi fólks.

Stefna flokkanna í leikskólamálum var greind í fréttinni hér að neðan.

#kvennagildra #reykjavík #samfylkingin #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262884371d/-samfylkingin-i-reykjavik-er-kvennagildra-

📰 Aðrar fréttir

Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
📅 30.06.2026 👁️ 0
Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
Hundrað ára afmæli Landhelgisgæslunnar átti að vera stór stund. En afmælið varð að víkja. Sviðsljósið kallaði.Varðskipið Þór er loksins komið á siglin...
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður og verjandi Sindra Snæs Birgissonar telur ólíklegt að hryðjuverkamálinu svokallaða verði áfrýjað til Hæstaréttar, hann...
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og systursamtök þess á Norðurlöndum lýsa yfir alvarlegum áhyggjum vegna vaxandi AI-samstarfs plötuútgefenda við...
Orðið á götunni: Marklaus gagnrýni Lilju – er vandinn ekki bara sá að Framsókn var hafnað í Alþingiskosningum?
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
Þetta kemur fram í harðorðri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. Líkt og fram hefur komið er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsö...
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
📅 30.06.2026 👁️ 0
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
Svavar Pálsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar. Hann tekur við starfinu 1. október næstkomandi. Hann tekur við af Pétri Arasyni, sem hafð...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar er rætt við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar sem staðfestir að málið sé komið til Persónuverndar...
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
📅 30.06.2026 👁️ 1
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
Skip Paul Watson-samtakanna á Íslandsmiðum, Bandero, ætlar að leggja til atlögu við olíufélagið sem þjónustar Hval hf. Þetta tilkynntu samtökin á samf...
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
„Við erum í raun ekki skynsemisverur sem byggja á gagnrýninni hugsun. Við viljum vera það, en það gengur illa,“ segir Janis Sarts, forstöðumaður öndve...
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
📅 30.06.2026 👁️ 1
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
Two people have been arrested in connection with the death of a young man at a commercial centre in Puerto Rico, in the municipality of Mogán, in the ...
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
Sprengjan sprakk í inngangi byggingarinnar nærri landamærunum að Frakklandi um klukkan níu í gærkvöldi að staðartíma. Tveir fullorðnir og barn særðust...
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
The United States' head of homeland security says he "danced a happy dance" when Iran's elimination from the World Cup was confirmed.
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
Þar er bent á að plötuútgefendur hafi farið að leyfa notkun á tónlistarsöfnum sínum í þjálfun gervigreindar og framleiðslu á tilbúnni tónlist, án þess...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara er til skoðunar hjá Persónuvernd. Nöfn fimm manna sem sættu sakamálarannsókn og málsnúmer birtust í kynningarmyndb...
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
Lægð við suðausturströnd Grænlands sem mjakast til norðausturs beinir hægt vaxandi sunnanátt til landsins, að sögn Veðurstofu Íslands. Hún á að valda ...
Lægðaskil með samfelldri rigningu
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lægðaskil með samfelldri rigningu
Lægð við suðausturströnd Grænlands beinir til okkar vaxandi sunnanátt og vætu með köflum. Þegar skil lægðarinnar ganga yfir má búast við samfelldri ri...
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
📅 30.06.2026 👁️ 1
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
The Canary Islands Government has activated a forest wildfire alert as the archipelago braces for its first significant heatwave of the year, with soa...
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
Í hópi tíu karla við vegagerð í Vatnsdal, sem við sögðum frá í kvöldfréttum Sýnar, er aldursforsetinn á stærðarinnar jarðýtu.Hann er úr Landeyjum og s...
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
Klara Sól stofnaði fyrirtækið The Liminal Society og ætlar sér stóra hluti í lífinu. Hún er gift fyrirsætunni og meistaranemanum Chris Petersen og þau...
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
📅 30.06.2026 👁️ 1
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
If you’re choosing between a holiday on Spain’s Atlantic coast and one further round in the Mediterranean, it helps to know they’re not really interch...
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
Breska ríkisútvarpið ræðir við fjölda Venesúelabúa sem bíða ýmist fregna eða taka þátt í leit af ástvinum sínum sem liggja enn undir rústum bygginga o...
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu. Þar kemur fram að lögreglu hafi einnig borist tilkynning um þjófnað úr matvöruverslun á stöð 1 s...
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
📅 30.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
For Serena Williams, everything and nothing has changed on her return to Wimbledon.
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
Sex manns létust í skotárás í bænum Stade í norðurhluta Þýskalands á mánudag. Fimm létust á vettvangi en sjötti einstaklingurinn lést síðar á sjúkrahú...
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við Kristján. Líkt og kunnugt er er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu o...
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
📅 30.06.2026 👁️ 1
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
The Canary Islands are set for another day of intense summer weather today, Tuesday, with temperatures forecast to climb to 40°C in some areas, accomp...
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef af þessum s...
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum Nátt­úru­fræði­stofn­un tel­ur drög um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­...
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
📅 30.06.2026 👁️ 1
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
Rússar skutu niður 419 úkraínska dróna í nótt. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið.Aukinn kraftur hefur færst í árásir Úkraínumanna með l...
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði með fimm atkvæðum gegn fjórum að leyfa Donald Trump að reka Lisu Cook úr bankaráði bandaríska seðlabankans. Hæstirét...
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
📅 30.06.2026 👁️ 2
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
The pupil's experience in a Yorkshire school highlights concerns about zero-tolerance behaviour policies.
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
📅 30.06.2026 👁️ 1
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
People in areas devastated by twin earthquakes say they need more support from the government.
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
Kínverski milljarðamæringurinn Guo Wengui var í gær dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Í júlí 2024 var hann sakfelldur fyrir fjársvik, fjárkúgu...
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
Germany make a shock last-32 exit against Paraguay, losing a World Cup penalty shootout for the first time to pile pressure on boss Julian Nagelsmann.
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
Þrír særðust, þar á meðal táningur, eftir að sprengja sprakk í íbúðarhúsnæði í Mónakó í kvöld.Heimildarmaður AFP segir einn hinna særðu vera Vadym Yer...
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
📅 30.06.2026 👁️ 2
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
Ferjan Særún sigldi aukaferð til Flateyjar á Breiðafirði í kvöld til að flytja vatn til eyjarinnar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur sinnt vatnsflutni...
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
Árið 2023 var Trump gert að greiða Caroll fimm milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar um 650 milljónum íslenskra króna, í skaðabætur. Áfrýjunardómstó...
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
📅 29.06.2026 👁️ 1
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
Menntasjóður námsmanna hefur stefnt konu á fertugsaldri vegna gjaldfalinnar skuldar upp á meira en 21 milljón króna. Konan tók lánið árið 2009, lauk n...
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
📅 29.06.2026 👁️ 1
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
As a man who has held prime ministerial ambitions for years, Andy Burnham makes his dash for the door, political editor Chris Mason writes.
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur frá því að ný umferðarlög tó...
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
Mohammed Al-Amour efnahagsráðherra sótti ráðherrafund EFTA-ríkjanna hér á landi til að skrifa undir uppfærslu á landbúnaðarhluta fríverslunarsamnings ...
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
📅 29.06.2026 👁️ 1
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
Three in five homes listed for sale since January remain on the market, says property portal Zoopla.
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
Kristrún deilir færslu um heimsóknina ásamt mynd af þeim tveimur meðal annars á Instagram-síðu sinni. Hún segir þær hafa farið um víðan völl yfir kaff...
Another UK heatwave could be on the way
📅 29.06.2026 👁️ 1
Another UK heatwave could be on the way
As parts of Europe continue to swelter in record temperatures, higher temperatures could develop again across the UK later this week, as Simon King ex...
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
📅 29.06.2026 👁️ 1
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
An independent inquiry into England's maternity services has found "unacceptable racism and discrimination" is affecting patient safety.
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
📅 29.06.2026 👁️ 1
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
Leikkonan Daveigh Chase lést fyrir viku síðan, en hún var hvað þekktust fyrir að vera rödd Lilo í teiknimyndinni Lilo & Stitch og fyrir hryllingsmyndi...
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
Árásarmaður sem skaut sex manns til bana í þjónustumiðstöð í þýska bænum Stade í dag var þangað kominn til að ræða um forsjárdeilu.Maðurinn átti í dei...
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
📅 29.06.2026 👁️ 1
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
Íbúar á Sléttunni í Fossvogi, einu Hrafnistuheimilanna, eru duglegir að hreyfa sig og gera alls konar æfingar, hvort sem það er í sal eða tækjasal. Þa...
Monaco explosion injures three people, French media report
📅 29.06.2026 👁️ 1
Monaco explosion injures three people, French media report
The blast at a residential building was "very likely an attack", Monaco's head of government tells AFP.
Parcel bomb injures Ukrainian oligarch and family in Monaco - reports
📅 29.06.2026 👁️ 1
Parcel bomb injures Ukrainian oligarch and family in Monaco - reports
The blast was caused by an explosive device which appeared to contain bolts and pellets, the head of Monaco's government said.