Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs en miðstöðin hefur umsjón með íslenska skálanum fyrir hönd menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
„Samfélag í bleyti veltir upp spurningum um samfélagslegt hlutverk arkitektúrs og setur íslenska baðmenningu fram sem einstakan vettvang jafnræðis og mótvægi við aukinn einmanaleika og sundrung samtímans,“ segir í tilkynningunni.
Sýningarstjóri er Marcos Zotes, einn eigenda Basalt arkitekta, og með honum í teymi eru arkitektarnir Hrólfur Karl Cela og Perla Dís Kristinsdóttir, hönnuðirnir Kristín Eva Ólafsdóttir og Nils Wiberg frá Gagarín, auk Ránar Flygenring, mynd- og rithöfundar.
„Á tímum aukinnar félagslegrar einangrunar hefur sjaldan verið meiri þörf fyrir rými sem styðja við samveru og mannleg tengsl. Samfélag í bleyti byggir á séríslenskri baðmenningu og skoðar hvernig sundlaugar og baðstaðir hafa þróast í mikilvæga félagslega innviði þar sem fólk mætist á jafnræðisgrundvelli, óháð aldri, stöðu eða uppruna,“ segir um sýninguna.
Menningin sem skapist í vatninu verði vettvangur fyrir óformleg samskipti og samfélagslega samheldni. Sýningin kortleggur hversdagslegar venjur íslenskrar baðmenningar og kannar hvernig þessi sameiginlega reynsla af vatni getur styrkt tengsl milli fólks.