Ekki hefur verið leitað til íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar eða rústabjörgunarsveitarinnar svokölluðu vegna jarðskjálftanna öflugu sem skóku Venesúela í gær.
Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnarélagsins Landsbjargar, við mbl.is.
„Við fylgjumst með en við sjáum í þessu alþjóðlega kerfi að það er búið að óska formlega eftir aðkomu sveita í Suður-Ameríku og Bandaríkjunum en enn sem komið er þá er ekki verið að flytja fólk á svæðið lengra af,“ segir Jón Þór.
Liggur í dvala eins og er
Jón Þór segir að rústabjörgunarsveitin liggi eins og er í dvala en í jarðskjálftunum í Tyrklandi á síðasta ári voru sendir út stjórnendur sem hafa mikla reynslu af stjórnun á vettvangi og samhæfingu. Hann segir að verið sé að byggja aftur upp sveit sem væri þá tiltæk í útkall sem þetta.
Margar byggingar hrundu í jarðskjálftunum en þeir tveir öflugustu sem riðu yfir voru 7,5 og 7,2 að stærð.
Nýjustu fregnir herma að 168 séu látnir og um eitt þúsund séu slasaðir en nær öruggt er að þessar tölur muni hækka enda er margra saknað.
