Umferðin út úr borginni hefur gengið óvenju vel fyrir sig miðað við að stærsta ferðahelgi ársins sé að ganga í garð. Lögregla segir ferðavenjur fólks að breytast og að margir leggi fyrr af stað út í verslunarmannahelgina. Margir nýti sér styttingu vinnuvikunnar til að geta lagt fyrr af stað.
Logi Sigurjónsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar, segir að það borgi sig að gefa sér aðeins meiri tíma í umferðinni þegar um svona stóra ferðahelgi sé að ræða og ráðleggur fólki að fara fyrr af stað en venjulega. Hann minnir fólk einnig á að fara ekki af stað heim fyrr en það er orðið ökuhæft.
Samkvæmt lögreglunni á Suðurlandi hefur umferðin verið nokkuð þétt en gengið vel og umferð hefur einnig verið töluverð á Norðurlandi þar sem margir leggja leið sína meðal annars á hátíðina Ein með öllu á Akureyri.