Ó­skiljan­legt að ráðu­neytið skoði bara stöðu náms­gagna í stærð­fræði - Vísir

Ó­skiljan­legt að ráðu­neytið skoði bara stöðu náms­gagna í stærð­fræði - Vísir

Ó­skiljan­legt að ráðu­neytið skoði bara stöðu náms­gagna í stærð­fræði - Vísir

Íris E. Gísladóttir, formaður Þróunarsjóðs námsgagna, segir nýlega skýrslu um stöðu námsgagna hafa hreyft við einhverju í ráðuneytinu en sjóðurinn gagnrýni þó að þau hafi valið eitt fag og án nokkurrar faglegrar greiningar. Stjórn sjóðsins skrifaði opið bréf til ráðherra þar sem þau hvöttu ráðuneytið til að skoða stöðu námsgagna í heild.

„Leggjast þarf í endurskoðun á þeim kerfislægu þáttum sem hafa leitt til núverandi stöðu: hvernig fjármögnun til námsgagna hefur þróast á raunvirði, hvernig verkaskipting ríkis og sveitarfélaga hefur skapað hvata sem vinna gegn fjárfestingu í námsefni, og hvernig lagalegur rammi hefur ekki haldið í við þarfir skólakerfisins. Slík greining er forsenda þess að niðurstöður úr einstaklingsbundnum könnunum, eins og þeirri sem nú er lögð fyrir stærðfræðikennara, leiði til bóta á því ófremdarástandi sem ríkt hefur í þessum málaflokki til fjölda ára,“ segir í bréfinu.

Stjórn sjóðsins bendir jafnframt á að aðgerðir vegna stærðfræðinámsefnis muni ekki leiðrétta þá slæmu stöðu sem námsgögn eru í.

Mennta- og barnamálaráðuneytið sendi erindi í vikunni til allra skólastjórnenda grunnskóla og skólameistara framhaldsskóla og voru þeir beðnir um að áframsenda könnunina til sinna stærðfræðikennara. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kom fram að könnunin væri liður í því að bæta yfirsýn yfir stöðu menntakerfisins og bregðast við ábendingum úr skólasamfélaginu um stöðu námsgagna í stærðfræði.

„Markmiðið er að fá fram mat kennara á stöðu stærðfræðinámsefnis, hvað hafi reynst vel og hvers konar stuðning þeir telji mikilvægastan við kennslu. Niðurstöðurnar verða nýttar við áframhaldandi vinnu ráðuneytisins við eflingu námsgagnaútgáfu, útgáfu og innleiðingu kennsluleiðbeininga og aukna samfellu í stærðfræðinámi,“ sagði í tilkynningunni sem birt var fyrr í vikunni.

Íris segir nýútgefna skýrslu sjóðsins sýna vel að staða námsgagna sé almennt slæm og búin að vera slæm.

„Þetta er svona uppsafnaður skortur sem er búinn að vera í gangi sko í 20 ár. Eins og við lítum á þessa viðleitni sem bara mjög gott framtak, þá skiljum við ekki endilega af hverju stærðfræði fram yfir annað fag.“

Hún segir sjóðinn, sem dæmi, í samstarfi við ráðuneytið um forgangsatriði hvað varðar námsgögn sem Þróunarsjóður námsgagna er að styrkja og að stærðfræði sé ekki í forgangi þar. Því komi þessi niðurstaða á óvart.

„Við vitum að það er ekki einhver formleg þarfagreining þarna sem stendur út af því að við höfum verið að óska eftir upplýsingum um stöðu námsgagna og óska eftir því að ráðuneytið fari í þarfagreiningu og kortleggi hvaða námsgögn eru til og hvað er ekki, út af því að það er enginn einn staður þar sem það er alveg ljóst.“

„Þannig að okkur finnst svona slá svolítið skökku við að það sé verið að velja þarna eina námsgrein fram yfir aðra, náttúrulega grunnnámsgrein, og frábært að það sé verið að gera eitthvað í málinu. En þetta er ekki að fara að breyta undirliggjandi vanda námsgagnagerðar á Íslandi sem er búinn að vera í ógöngum svo áratugum skiptir.“

Þetta sé plástur og leysi ekki vandann sem áralangur námsgagnaskortur hefur valdið. Hún segir bráða þörf á þarfagreiningu á öllu námskerfinu en svo þurfi einnig að breyta fyrirkomulagi útgáfunnar.

„Við erum að reka eina af fimm ríkisreknu námsgagnaútgáfum sem til fyrirfinnast í heiminum og þar erum við meðal annars í hópi með bara Norður-Kóreu og Svartfjallalandi og svona löndum sem maður kannski ekkert endilega vill vera á lista með.“

Útgáfa á frjálsum markaði

Hún segir sjóðinn hafa bent á þetta og að alþjóðleg samtök bókaútgefenda hafi, til dæmis, sett Ísland á svartan lista yfir ógn við tjáningarfrelsi. Ráðherra hafi bein áhrif á útgáfu og þó að það hafi ekki verið áhyggjuefni hingað til hafi þróun alþjóðlega verið á þann veg að sjóðurinn hafi auknar áhyggjur af því.

„Þannig að það væri bara mjög auðveldlega bara hægt með einu pennastriki löglega að taka út bara ákveðna gerð af námsefni eða, þarna, námsefni sem þú styrkir til dæmis, styður við, þú veist, hinsegin fræðslu, alls konar svona hluti, af því þetta heyrir bara beint undir ráðherra.“

Hún segir að þó svo að þau sem starfi hjá ríkisútgáfunni séu að gera sitt besta séu þau með of lítið fjármagn á milli handanna. Á Íslandi sé verið að verja um fjórðungi af því fjármagni sem er varið í því landi á Norðurlöndum þar sem minnstu fjármagni er varið.

Íris segir að annars staðar sé slík útgáfa á frjálsum markaði. Fólk hafi áhyggjur af því að við séum of lítil, en hún segir að í öðrum smáum þjóðum sé þetta gert í gegnum þýðingarstyrki. Þannig sé tungumálinu viðhaldið á sama tíma.

„Fyrir utan það að við erum með fáum löndum þar sem kennarar hafa í rauninni ekkert val. Út á pappír mega þau velja hvaða námsefni sem er en þau fá ekkert fjármagn til þess. Það eru 1.300 krónur á ári sem skóli fær per nemanda. Það eru öll námsfög, í öllum greinum, samtals. Þetta er ekkert raunverulegt val um hvað þú vilt kenna.“

Þörf á fjölbreytttu efni fyrir ólíka hópa

Íris segir kennara oft vinna með fjölbreytta hópa og það þurfi fjölbreytt námsefni. Annars staðar gangi kennarar að fjölbreyttu vali á námsgögnum til að mæta ólíkum hópum í kennslustofunni.

„Mér finnst bara ofboðslega sorglegt að horfa upp á það að við séum ein af þeim fáu þjóðum sem treysta ekki kennurum okkar, sem eru faglærðir, fagmenntaðir sérfræðingar, til þess að geta kennt börnunum og valið þau tól sem þeir eru að kenna börnunum með.“

Hún segir kennara úrræðagóða og að margir þeirra búi til sitt eigið efni á hverju ári. Rannsókn sem kom út fyrir tveimur árum hafi til dæmis sýnt að 70 prósent kennara nýta heimatilbúið námsefni sem er útbúið í skólunum, oft eða mjög oft. Tuttugu prósent í viðbót gera það að einhverju leyti og aðeins tíu prósent segjast ekki gera það.

„Þannig að það er mjög mikið námsefni í umferð sem er bara útbúið í skólunum og þar sem að. Gallinn þar er líka að þetta náttúrulega setur rosalegt álag á kennarastéttina, þetta setur rosalegt álag, óþarfa álag, á starfstíma kennara.“

Alþjóðlegar kannanir sýni að kennarar á Íslandi sinni miklu fleiri verkum, bæði stjórnsýslulega og í námsgagnagerð, heldur en í öðrum löndum. Það séu þannig færri stundir sem þeir hafi í að aðlaga kennsluna að hópnum.

„Það sem við erum líka að gera þar er að við erum að margborga, þú veist, það er verið að búa til í hverjum skóla, verið að finna upp hjólið í hverjum skóla og það nýtist sjaldnar í öðrum skólum. Þannig að við erum að búa til á hverjum stað í staðinn fyrir að það sé bara miðlægur grunnur þar sem allir geta sótt fjölbreytt efni í.“

Sammála um framhaldið

Fram kom í skýrslu þróunarsjóðsins fyrr í mánuðinum að starfshópur á vegum mennta- og barnamálaráðuneytisins um námsgögn hafi skilað skýrslu í ágúst 2024 með tíu tillögum. Þar hafi átján hagsmunaaðilar komið saman og komist að sameiginlegri niðurstöðu og þáverandi ráðherra, Ásmundur Einar Daðason, tilkynnt í kjölfarið að tvöfalda ætti fjárframlög til námsgagnagerðar. Stuttu seinna var boðað til kosninga og ný ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins tók við í desember sama ár. Frá þeim tíma hafa þrír ólíkir mennta- og barnamálaráðherrar verið við völd.

Í skýrslu þróunarsjóðsins er það gagnrýnt að þetta hafi aldrei náð til framkvæmda en frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi í þrígang, nánast óbreytt, bæði af fyrri og núverandi ríkisstjórn. Íris segir sjóðinn nú hafa fengið það staðfest frá ráðuneytinu að það eigi ekki að leggja þetta frumvarp fram aftur.

„Það eru allir hagsmunaaðilar sammála því að þetta er virkilega brýnt viðbragð sem þarf, við þurfum að bregðast við námsgagnaskorti. Við erum búin að tala um námsgagnaskort í 20–30 ár og þegar staðan hefur verið skorturinn í svona langan tíma þá er náttúrulega bara, þetta er orðið grafalvarlegt.“

Námsbækur endurspegli ekki samtímann eða raunveruleikann og þannig myndist gjá á milli þess sem börnin læra og lesa og þess sem þau upplifa.

Einskiptisátak sem ekki gerir gagn

Íris er ekkert sérstaklega vongóð um framhaldið og að brugðist verði við ákalli sjóðsins. Það sé stefnt að hallalausum fjárlögum og það sé ekki verið að fjárfesta í því magni sem þarf raunverulega til. Ríkisstjórnin hafi boðað sókn í menntamálum og þetta rími illa við það.

„Ég hræðist að þetta verði einhvers konar einskiptisátak, þetta verði, það verði í löngu ákvörðunar- og þróunarferli og kannski eftir fimm til sex ár verði komið út eitthvað námsefni í stærðfræði, en í millitíðinni hefur ekkert gerst í neinu öðru.“

Þá verði enn skortur á námsgögnum. Því hafi þau afhent skýrsluna til mennta- og barnamálaráðuneytis og fjármálaráðuneytis.

„Það er ekki hægt að fara í einhverja viðsnúninga og bara virkilegar breytingar til þess að bjarga máli sem er bara á vondum stað ef það á ekki að leggja til neitt sjálft og það er það sem maður hræðist þarna.“

Skólakerfið sé ekki lengur jöfnunartól

Íris segir það víða þannig að vegna þess að staðan er svo slæm hafi sum sveitarfélög gripið boltann þótt það sé ekki lagaleg skylda þeirra. Það sé ekki endilega sanngjörn niðurstaða því það geti leitt til mismununar þegar ákveðnir skólar eða sveitarfélög leggja til fjármagn en ekki aðrir.

„Skólakerfið á Íslandi hefur alltaf verið þetta jöfnunartól samfélagsins okkar, sem gerir öllum kleift að komast áfram í lífinu á jöfnum grundvelli, en það er horfið. Þetta fer miklu meira eftir því bara hvaða kennara þú ert með, hvort kennarinn þinn sé fær í því sem hann er að gera eða búi að því að geta gengið í hérna námsgögn og annan stuðning inni í þeim skóla sem hann starfar.“

Svo bendi stjórnvöld á kennara og að þeir séu ekki að standa sig en að hennar mati sé það þveröfugt, þeir standi sig ótrúlega vel miðað við hvað þeir séu með í höndunum.

#bara #ráðuneytið #skoði #stöðu #óskiljanlegt


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262896837d/oskiljanlegt-ad-raduneytid-skodi-bara-stodu-namsgagna-i-staerdfraedi

📰 Aðrar fréttir

Syrians grow frustrated as soaring living costs threaten recovery
📅 30.10.2026 👁️ 1
Syrians grow frustrated as soaring living costs threaten recovery
Fuel price rises are driving discontent, testing support for Ahmed al-Sharaa's government.
Nína Richter skrifar: Enginn fátækur í faginu
📅 30.10.2026 👁️ 2
Nína Richter skrifar: Enginn fátækur í faginu
Mynd Ég er komin til Búdapest í annað sinn.
Námsmenn tæma skóla í dag og lögregla býst við óeirðum
📅 30.10.2026 👁️ 3
Námsmenn tæma skóla í dag og lögregla býst við óeirðum
Ítalskir námsmenn ætla að safnast saman í nokkrum borgum í dag og krefjast aukins fjármagns til skólamála, sem og stuðnings við húsnæðismál. Löggæsluy...
Milljörðum sennilega stolið í tölvuárás á rafmyntakauphöll
📅 30.10.2026 👁️ 2
Milljörðum sennilega stolið í tölvuárás á rafmyntakauphöll
Binance, stærsta rafmyntakauphöll heims, varð fyrir umfangsmikilli tölvuárás og hefur kauphöllin fryst fjármagn upp á 2,5 milljarða bandaríkjadala til...
Einn látinn í eldflaugaárás í Kíev
📅 30.10.2026 👁️ 3
Einn látinn í eldflaugaárás í Kíev
Einn er látinn eftir að Rússar gerðu eldflaugaárás í Kíev, höfuðborg Úkraínu. Vitali Klitschko borgarstjóri greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Tele...
Einn látinn í eldflaugaárás í Kyiv
📅 30.10.2026 👁️ 2
Einn látinn í eldflaugaárás í Kyiv
Einn er látinn eftir að Rússar gerðu eldflaugaárás í Kyiv, höfuðborg Úkraínu. Vitali Klitschko borgarstjóri greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Tele...
Hafna áfrýjunarbeiðni sveppamorðingjans og þyngja dóminn
📅 30.10.2026 👁️ 3
Hafna áfrýjunarbeiðni sveppamorðingjans og þyngja dóminn
Erin Patterson, áströlsk kona sem var dæmd í lífstíðarfangelsi á síðasta ári fyrir þrefalt morð, tapaði áfrýjun á máli sínu í dag.Patterson komst í he...
Democrats have an identity crisis - it won't be an easy fix
📅 30.10.2026 👁️ 2
Democrats have an identity crisis - it won't be an easy fix
Whatever the result of the midterm elections, the party is facing tough questions over what they stand for and who should represent them.
Talningu lokið og strembin stjórnarmyndun fram undan
📅 30.10.2026 👁️ 4
Talningu lokið og strembin stjórnarmyndun fram undan
Öll atkvæði hafa verið talin í Ísrael. Likud, flokkur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra, fékk 27 þingsæti og stjórnarblokk hans er með alls 53 sæti...
Erin Patterson: Australian mushroom murderer loses appeal to overturn convictions
📅 30.10.2026 👁️ 4
Erin Patterson: Australian mushroom murderer loses appeal to overturn convictions
Erin Patterson argued her trial was unfair due to seven grounds but three appeal judges dismissed them all.
Biggest fibre boost could be scraps in your bin, experts say
📅 30.10.2026 👁️ 4
Biggest fibre boost could be scraps in your bin, experts say
Chomping on vegtable skins, seeds and stalks could give us vital fibre, say food scientists.
Crypto giant Binance freezes $2.5bn of assets over suspected hack
📅 30.10.2026 👁️ 6
Crypto giant Binance freezes $2.5bn of assets over suspected hack
The firm said transactions are suspended while it conducts security checks and will "cover all losses".
Crypto worth billions frozen after suspected Binance hack
📅 30.10.2026 👁️ 4
Crypto worth billions frozen after suspected Binance hack
The firm said transactions are suspended while it conducts security checks and will "cover all losses".
Binance says crypto worth $6.3bn impacted in suspected hack
📅 30.10.2026 👁️ 2
Binance says crypto worth $6.3bn impacted in suspected hack
The firm said roughly $3bn in assets have been frozen and that it will 'cover all losses'.
Crypto giant Binance hit by 'largest hack in history'
📅 30.10.2026 👁️ 1
Crypto giant Binance hit by 'largest hack in history'
The world's biggest crypto exchange said $6.3bn of digital assets had been impacted by the incident.
Crypto giant Binance hit by hack suspected to be largest in history
📅 30.10.2026 👁️ 1
Crypto giant Binance hit by hack suspected to be largest in history
Two analytics firms have attributed the incident to a North Korean hacking unit called TraderTraitor.
Hlutabréf móðurfélags Google lækka um 12%
📅 30.10.2026 👁️ 3
Hlutabréf móðurfélags Google lækka um 12%
Alphabet, móðurfélag Google, tapaði um hálfri billjón bandaríkjadala í markaðsvirði sínu á hlutabréfamarkaði í vikunni. Það er um 61 billjón íslenskra...
Serbia: Student-backed election winners demand sweeping resignations
📅 30.10.2026 👁️ 6
Serbia: Student-backed election winners demand sweeping resignations
Days after ousting Aleksandar Vučić's party from power, Student List MPs call for top figures to stand down.
Stað­festa tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorra­blót - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Stað­festa tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorra­blót - Vísir
Maðurinn var fyrst sakfelldur í Héraðsdómi Austurlands í desember 2025, þar sem hann var ákærður fyrir nauðgun með því að hafa í gestaherbergi á heimi...
The Traitors: Bombshell confession as faithfuls finally turn the screw
📅 29.10.2026 👁️ 3
The Traitors: Bombshell confession as faithfuls finally turn the screw
Could the faithfuls finally come good in Thursday's penultimate episode?
Hyrox athlete who soiled herself in race admits putting others at risk but says backlash was traumatic
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hyrox athlete who soiled herself in race admits putting others at risk but says backlash was traumatic
In her first interview since the incident, Joanna Wietrzyk told the BBC she takes responsibility for it but did not deserve such a severe backlash.
Sir Patrick Stewart er látinn
📅 29.10.2026 👁️ 3
Sir Patrick Stewart er látinn
Enski leikarinn Sir Patrick Stewart er látinn, 86 ára að aldri. Stewart lést á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum á miðvikudag.„Í stað blóma e...
Skjal undirritað af Davíð Oddssyni bjargaði Didda í Sovétríkjunum: „Ég ákvað að við værum bara að beita leynivopni og drógum upp þetta plagg“
📅 29.10.2026 👁️ 2
Skjal undirritað af Davíð Oddssyni bjargaði Didda í Sovétríkjunum: „Ég ákvað að við værum bara að beita leynivopni og drógum upp þetta plagg“
Hestur sprakk framan á hljómsveitarbíl, biðröð myndaðist fyrir utan Gauk á Stöng á sunnudagskvöldum, bréf frá borgarstjóra bjargaði manni í Sovétríkju...
Sérstaklega hættuleg líkamsárás: Kastaði glerglasi í höfuð brotaþola á Veður
📅 29.10.2026 👁️ 2
Sérstaklega hættuleg líkamsárás: Kastaði glerglasi í höfuð brotaþola á Veður
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa, að kvöldi föstudagsins 12. desember 2024, á vínveitingastaðnum ...
Stjórn Velferðar segir ríkið hafa brugðist skyldu sinni í að tryggja viðeigandi búsetuúrræði
📅 29.10.2026 👁️ 2
Stjórn Velferðar segir ríkið hafa brugðist skyldu sinni í að tryggja viðeigandi búsetuúrræði
Hildigunnur Árnadóttir varaformaður Velferðar, samtaka stjórnenda í velferðarþjónustu sveitarfélaga á Íslandi, segir ríkið hafa brugðist skyldu sinni ...
Vill þjóðarátak til að útrýma fátækt barna á Íslandi
📅 29.10.2026 👁️ 5
Vill þjóðarátak til að útrýma fátækt barna á Íslandi
Barnamálaráðherra vill ráðast í þjóðarátak gegn fátækt barna á Íslandi og segist finna fyrir mikilli samstöðu um markmiðið. Hún vill að tveir til þrír...
Úti­lokar ekki verk­fall eftir út­spil sem kom eins og þruma úr heið­skíru lofti - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 5
Úti­lokar ekki verk­fall eftir út­spil sem kom eins og þruma úr heið­skíru lofti - Vísir
Að óbreyttu yrði kjarasamningum þá sagt upp 1. janúar 2027 og fengi forsendunefnd svo tvo mánuði til að leysa úr ágreiningsmálum. Takist það ekki yrðu...
Sir Patrick Stewart: The life of an iconic actor
📅 29.10.2026 👁️ 5
Sir Patrick Stewart: The life of an iconic actor
In a career that spanned seven decades, Sir Patrick won multiple Emmys and Golden Globes, a star on the Hollywood Walk of Fame and a knighthood from Q...
Þristurinn gefinn Flugsafni Ís­lands - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 5
Þristurinn gefinn Flugsafni Ís­lands - Vísir
Samkvæmt yfirlýsingunni er stefnt að því að yfirfærslu Þristsins til safnsins verði lokið fyrir lok þessa árs. Aðilar lýsa sig sammála um mikilvægi þe...
Spain train crash: Young athlete and former minister among victims
📅 29.10.2026 👁️ 3
Spain train crash: Young athlete and former minister among victims
As some of the victims' names are released publicly, an outpouring of grief and anger is sweeping across Spain.
Value of Google parent Alphabet plunges by $500bn as AI fears rattle Wall Street
📅 29.10.2026 👁️ 2
Value of Google parent Alphabet plunges by $500bn as AI fears rattle Wall Street
Google spooked investors so badly that its stock hit a six-month low, after it revealed its AI search summaries were affecting ad revenue.
Sagan sýni að flokki sitjandi forseta sé refsað í þingkosningum
📅 29.10.2026 👁️ 4
Sagan sýni að flokki sitjandi forseta sé refsað í þingkosningum
Doktor í félagstölfræði segir að sé litið til sögunnar sé flokki sitjandi forseta oftar en ekki refsað í þingkosningum en Bandaríkjamenn ganga að kjör...
Patrick Stewart er látinn
📅 29.10.2026 👁️ 4
Patrick Stewart er látinn
Enski leikarinn Patrick Stewart er látinn, 86 ára að aldri. Stewart lést á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum á miðvikudag.„Í stað blóma er þe...
Skýr merki um kólnun í hagkerfinu
📅 29.10.2026 👁️ 4
Skýr merki um kólnun í hagkerfinu
Una Jónsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, segir skýr merki um kólnun í hagkerfinu og viðbúið að dragi úr verðbólgu þegar líður á v...
Sagður hafa átt í sam­skiptum við kín­verskan njósnara - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Sagður hafa átt í sam­skiptum við kín­verskan njósnara - Vísir
Bandaríkjamenn hafa um árabil unnið hörðum höndum að því að koma í veg fyrir að bandarísk tækni á sviði gervigreindar endi í höndum Kínverja. Huang he...
Birta myndir úr aðgerðinni ótrúlegu í norður Úkraínu – Leiðslurnar aðeins 1,2 metrar í þvermál
📅 29.10.2026 👁️ 3
Birta myndir úr aðgerðinni ótrúlegu í norður Úkraínu – Leiðslurnar aðeins 1,2 metrar í þvermál
Birt hefur verið myndefni úr aðdraganda hernaðaraðgerðinnar Veles í Úkraínu. Komust úkraínskir hermenn langt inn fyrir víglínu Rússa og náðu stóru svæ...
What leaked audio reveals about Spain train crash
📅 29.10.2026 👁️ 5
What leaked audio reveals about Spain train crash
Recordings between a control centre and the train drivers appear to show one train was given clearance to move even though another train had stalled o...
Héldu nám­skeið um heiðursofbeldi - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Héldu nám­skeið um heiðursofbeldi - Vísir
Samkvæmt svörum frá ráðuneytinu við fyrirspurn Vísis var námskeiðið liður í eftirfylgd aðgerða sem lúta að heiðursofbeldi í þingsályktun um framkvæmda...
King Charles in Guyana as Bahamas visit declared 'diplomatic success'
📅 29.10.2026 👁️ 4
King Charles in Guyana as Bahamas visit declared 'diplomatic success'
As the King left the Bahamas his spokesman said the islands had "a special place in the King's heart".
Stundum gott að fara öruggu leiðina - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Stundum gott að fara öruggu leiðina - Vísir
Þóra er 28 ára markaðsgella og ljósmyndari sem ræddi við blaðamann um tískuna, fataskápinn og skemmtileg tískuslys. Þóra Ólafs sækir í stílhreinar flí...
Bólusetning gegn ristli gæti komið í veg fyrir heilabilun
📅 29.10.2026 👁️ 3
Bólusetning gegn ristli gæti komið í veg fyrir heilabilun
Rannsóknir benda til að bólusetning gegn ristli geti dregið úr líkum á heilabilun. Ristill er sjúkdómur af völdum sömu veiru og veldur hlaupabólu. Han...
Israeli opposition accuses Netanyahu of trying to 'delegitimise' election
📅 29.10.2026 👁️ 4
Israeli opposition accuses Netanyahu of trying to 'delegitimise' election
The PM's Likud party has alleged foreign interference and said Arab-led parties "stole" the election after his coalition lost its majority.
Spjallið með Frosta Logasyni | Teitur Atlason – Er fjölmenningin að bresta?
📅 29.10.2026 👁️ 4
Spjallið með Frosta Logasyni | Teitur Atlason – Er fjölmenningin að bresta?
Spjallið með Frosta LogasyniFrosti Logason og Teitur Atlason ræða mótmæli og óeirðir í Evrópu og velta fyrir sér hvað liggi að baki óánægjunni. Þeir r...
Póstkort hlýtur verðlaun í New York sem besta stutta heimildarmyndin
📅 29.10.2026 👁️ 3
Póstkort hlýtur verðlaun í New York sem besta stutta heimildarmyndin
Íslenska heimildarmyndin Póstkort eftir Freyju Kristinsdóttur hlaut um síðustu helgi verðlaun sem besta stutta heimildarmyndin á Nordic International ...
Hvað veistu um... Með allt á hreinu? - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hvað veistu um... Með allt á hreinu? - Vísir
Þá lifa frasar úr myndinni enn góðu lífi enda persónur úr myndinni, Stinni Stuð, Harpa Sjöfn að ógleymdum Dúdda rótara, með eindæmum orðheppnar. En hv...
Patrick Stewart látinn - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Patrick Stewart látinn - Vísir
Variety greinir frá en samkvæmt yfirlýsingu á Instagram-reikningi hans háði Stewart skamma baráttu við Alzheimers og Lewy-sjúkdóm áður en hann lést. Í...
Patrick Stewart látinn
📅 29.10.2026 👁️ 2
Patrick Stewart látinn
Breski leikarinn Patrick Stewart er látinn 86 ára að aldri. Stewart er einna helst þekktur fyrir leik sinn í Star Trek myndunum og X-men. Greint var f...
Ásgeir Helgi nýr verslunarstjóri Ofar
📅 29.10.2026 👁️ 3
Ásgeir Helgi nýr verslunarstjóri Ofar
Ofar hefur ráðið Ásgeir Helga Þrastarson sem verslunarstjóra í verslun fyrirtækisins að Borgartúni 37.Ásgeir Helgi kemur til Ofar frá Epli, þar sem ha...
Lífeyrissjóður verzlunarmanna verður Lifa lífeyrissjóður
📅 29.10.2026 👁️ 2
Lífeyrissjóður verzlunarmanna verður Lifa lífeyrissjóður
Lífeyrissjóður verzlunarmanna mun taka upp nafnið Lifa lífeyrissjóður að fengnu samþykki aukaársfundar mánudaginn 16. nóvember. Kemur þetta fram í fré...
Búnaðurinn margfalt verðmætari en gagnaverin sjálf
📅 29.10.2026 👁️ 3
Búnaðurinn margfalt verðmætari en gagnaverin sjálf
Til að komast inn á athafnasvæði AtNorth þarf að fara í gegnum rammgert öryggishlið og greinilegt er að mikil áhersla er lögð á öryggismál. Þar hittum...