„Orð hennar og þessar upp­hrópanir ekki til sóma“ - Vísir

„Orð hennar og þessar upp­hrópanir ekki til sóma“ - Vísir

„Orð hennar og þessar upp­hrópanir ekki til sóma“ - Vísir

Umræðum um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst varðandi aðildarviðræður við Evrópusambandið verður fram haldið á þingfundi klukkan þrjú í dag. Forseti Alþingis sagði í gær að sátt væri um að málið yrði afgreitt í dag. Engir þingfundir eru áætlaðir á morgun og hinn og þarf því að afgreiða málið í dag ef fyrirhuguð dagsetning fyrir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst á að halda sér.

Stjórnarandstaðan hefur lagt fram tvær breytingartillögur vegna málsins og er Diljá Mist Einarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd, flutningsmaður þeirra. Hún segir umræðuna helst stranda á því að leynd hefur ekki verið aflétt af gögnum í utanríkismálanefnd.

„Það var meðal annars til umfjöllunar á fundi nefndarinnar í morgun. Það er auðvitað erfitt að klára umræðu um málið þegar það er ekki búið að skila öllum upplýsingum. Formaður utanríkisnefndar hefur lofað því enn og aftur að ganga á eftir þessum upplýsingabeiðnum. Þetta undirstrikar auðvitað það með hversu miklum hraða þetta mál er unnið. Það er auðvitað alveg óskiljanlegt.“

Breytingartillögur verða til umræðu

Í breytingartillögunum er annars vegar lagt til að atkvæðagreiðslunni verði seinkað fram í október 

„Það hafa engin rök verið færð fyrir þessari dagsetningu umfram aðrar. Til dæmis það að seinka henni um fáeinar vikur þegar sumarleyfistími þjóðarinnar stendur ekki yfir og þingið er að störfum. Við höfum lagt fram breytingartillögu því að það er í takt við áhyggjur landskjörstjórnar og reyndar umfjöllun Feneyjanefndarinnar sömuleiðis sem höfðu vissar áhyggjur af þessari tímasetningu.“

Hin breytingartillagan er tvíþætt og er annars vegar lagt til að orðalagi spurningarinnar verði breytt

„Vegna athugasemda landskjörstjórnar og Feneyjarnefndarinnar er þegar búið að reyna að bæta úr annmörkum á málinu með því að breyta spurningunni. Við teljum að það sé ekki gengið nógu langt. Spurningin verður að vera hafin yfir allan vafa.“

Tillaga meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar:

„Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“

Tillaga Diljár Mistar Einarsdóttur, Hildar Sverrisdóttur, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Sigurðar Inga Jóhannssonar:

„Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið?

Hins vegar er lagt til að utanríkisráðherra verði gert skylt að kynna samningsmarkmið Íslands mánuði fyrir atkvæðagreiðslu.

„Við teljum hreinlega að markmiðin og varnarlínur Íslands hvað varðar hagsmuni skipti kjósendur máli svo þeir geti tekið afstöðu hvort þeir vilji fara í viðræður við ESB. Okkur þykir hreinlega hvorki sanngjarnt né lýðræðislegt að biðja um opið umboð frá þjóðinni án þess að það sé búið að vinna ákveðna greiningarvinnu og kortlagningu varðandi hagsmuni Íslands.“

Gagnrýnir utanríkisráðherra harðlega

Þingflokksformenn funda í hádeginu varðandi hvort mögulegt sé að ljúka umræðum í dag eins og stefnt er að.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sakaði andstæðinga viðræðna um hræðsluáróður í samtali við breska dagblaðið Guardian. Hún sagði þá sem eru mótfallnir aðildarviðræðum nota aðferðir Nigel Farage og lærisveina hans í Reform í aðdraganda Brexit.

„Ég segi nú bara margur heldur mig sig. Þetta eru kaldar kveðjur frá utanríkisráðherra til fólks sem er henni í grundvallaratriðum ósammála. Maður hlýtur að vera kominn í algjört rökþrot þegar það eina sem maður getur hópað upp yfir sig er hræðsla og vantraust. Mér finnst þessi orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma.“

„Þetta er kannski líka merki um þessa skautun og þennan klofning í þjóðinni sem við höfum viðrað áhyggjur af og forsætisráðherra tók nú undir þá umræðu í aðdraganda síðustu Alþingiskosninga. Það væri mikilvægt að það væri sátt hjá íslensku þjóðinni þegar við værum að takast á við svona stór viðfangsefni. Utanríkisráðherra er ekki að stuðla að því frekar en fyrri daginn að það ríki einhver sátt í íslensku samfélagi. Mér virðist ekki vera svo með þessu framferði hennar og orðalagi,“ heldur Diljá áfram.

Spurð hvort hún sé vongóð um að það verði gengið að breytingartillögunum og hvort málið verði klárað í dag segir hún:

„Ég hef fulla trú á því að við náum að klára þessa umræðu bara sómasamlega þegar allir eru búnir að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og auðvitað allar upplýsingar eru lagðar til grundvallar. Þannig að það er auðvitað grundvallarforsenda, hvort meirihlutinn hlusti á okkar athugasemdir og rök.“

Tillaga meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar:

„Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“

Tillaga Diljár Mistar Einarsdóttur, Hildar Sverrisdóttur, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og Sigurðar Inga Jóhannssonar:

„Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið?

#ekki #hennar #orð #upphrópanir #þessar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262889269d/-ord-hennar-og-thessar-upphropanir-ekki-til-soma-

📰 Aðrar fréttir

Sigurður Brynjar Pálsson: Mjóafjarðarbrúin er úr vöruskrá BYKO
📅 13.07.2026 👁️ 0
Sigurður Brynjar Pálsson: Mjóafjarðarbrúin er úr vöruskrá BYKO
Brúin yfir Mjóafjörð kemur úr vöruskrá BYKO. Byggingavöruverslanir koma í auknum mæli að borðinu á hönnunarstigi verkefna og starfsemin hefur á margan...
Heiða Ósk segir kæru fyrir ærumeiðingar vera hluta af áreiti fyrrverandi unnusta síns
📅 13.07.2026 👁️ 0
Heiða Ósk segir kæru fyrir ærumeiðingar vera hluta af áreiti fyrrverandi unnusta síns
Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, Heiða Ósk, stofnandi Facebook-hópsins „Áfram stelpur“, greinir frá því á Facebook-síðu sinni, að lögregla hafi fellt n...
Verktaki segir blikur á lofti
📅 13.07.2026 👁️ 0
Verktaki segir blikur á lofti
Verktaki segir blikur á lofti í byggingariðnaðinum og störfum hafi fækkað. Aftur á móti sé ólíklegt að einhver fari þá leið að skipta faglærðum út fyr...
Purrkur Pillnikk gefur út sitt fyrsta nýja lag í 44 ár
📅 13.07.2026 👁️ 0
Purrkur Pillnikk gefur út sitt fyrsta nýja lag í 44 ár
Hljómsveitin Purrkur Pillnikk hefur sent frá sér nýtt lag, Læknir og svín, en um er að ræða fyrsta frumsamda lag sveitarinnar sem kemur út í 44 ár. Sv...
Úrkoma næstu daga langt yfir meðaltali — gæti sést til sólar í vikulok
📅 13.07.2026 👁️ 0
Úrkoma næstu daga langt yfir meðaltali — gæti sést til sólar í vikulok
Úrkomumagn næstu tíu daga gæti orðið allt að nífalt það sem gerist í meðalári að jafnaði á tíu daga tímabili á þessum árstíma. Veðurfræðingur segir be...
Grobba sig af stolnum trjám - Vísir
📅 13.07.2026 👁️ 0
Grobba sig af stolnum trjám - Vísir
Fjörutíu ár eru síðan fyrstu trjánum í Hellisskógi var plantað en áður voru þar aðeins móar og mýrar. Síðan þá hefur skógurinn vaxið og dafnað vel og ...
Minniháttar umferðarslys í Kömbunum
📅 13.07.2026 👁️ 0
Minniháttar umferðarslys í Kömbunum
Lögregla, sjúkrabílar og slökkvilið voru kölluð til vegna minniháttar umferðarslyss ofarlega í Kömbunum í kvöld þegar bíll valt utan vegar. Engin alva...
Lesbíur selja lit­ríka í­búð - Vísir
📅 13.07.2026 👁️ 0
Lesbíur selja lit­ríka í­búð - Vísir
Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð húss sem var byggt árið 2006 á Völlunum í Hafnarfirði . Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, eitt...
Sakborningar í Dettifossmálinu njóta nafnleyndar – Smygluðu 14 lítrum af amfetamínbasa frá Þýskalandi
📅 13.07.2026 👁️ 0
Sakborningar í Dettifossmálinu njóta nafnleyndar – Smygluðu 14 lítrum af amfetamínbasa frá Þýskalandi
Ákæra Héraðssaksóknara í Dettifossmálinu, sem varðar smygl á miklu magni af amfetamínbasa með Dettifossi, flutningaskipi Eimskips, hingað til lands fr...
„Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ - Vísir
📅 13.07.2026 👁️ 0
„Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ - Vísir
„Fyrir fimm árum var mér nauðgað. Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa. En það sem tók við á eftir varð að löngu og sársaukafull...
Judge voids Donald Trump's 'improper' $1.8b IRS settlement that gave him immunity from tax audits
📅 13.07.2026 👁️ 0
Judge voids Donald Trump's 'improper' $1.8b IRS settlement that gave him immunity from tax audits
The judge said the suit was brought for 'improper purposes' and referred a Trump attorney for possible disciplinary action.
Ó­skiljan­leg á­fengis­sala, ó­vissa fyrir úr­slita­stund og úr­koman enda­lausa - Vísir
📅 13.07.2026 👁️ 0
Ó­skiljan­leg á­fengis­sala, ó­vissa fyrir úr­slita­stund og úr­koman enda­lausa - Vísir
Óskiljanlegt er að netsalaáfengis þenjist út eftir að dómur er fallinn um að hún sé ólögleg að mati þingmanns og fyrrverandi fjármálaráðherra. Hann ka...
Hvað er fyrrverandi eiginmaður Kim Kardashian að gera í dag?
📅 13.07.2026 👁️ 0
Hvað er fyrrverandi eiginmaður Kim Kardashian að gera í dag?
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian á þrjá fyrrverandi eiginmenn. Sá þekktasti þeirra er rapparinn Kanye West, sem jafnframt er barnsfaðir hennar. Fy...
Rifrildi um menntun og leigubifreið endaði með ósköpum - Nefbraut konuna sem kallaði hann „ómerkilegan barþjón“
📅 13.07.2026 👁️ 0
Rifrildi um menntun og leigubifreið endaði með ósköpum - Nefbraut konuna sem kallaði hann „ómerkilegan barþjón“
Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að nefbrjóta konu sumarið 2023, en konan hafði áður veist að manninum fyri...
Burnham cements Labour leadership with backing of 349 MPs
📅 13.07.2026 👁️ 0
Burnham cements Labour leadership with backing of 349 MPs
The MP for Makerfield is on track to become the prime minister next week after receiving the support of the vast majority of Labour MPs.
Trump endurvekur hafnbann á Íran og hyggst taka yfir Hormússund
📅 13.07.2026 👁️ 0
Trump endurvekur hafnbann á Íran og hyggst taka yfir Hormússund
Donald Trump Bandaríkjaforseti er ekki af baki dottinn þrátt fyrir að Íranar séu að eigin sögn búnir að loka Hormússundi. Hann segir að Bandaríkin mun...
Briton tells of surviving Spain wildfire in car as wife and friends died trying to run to safety
📅 13.07.2026 👁️ 0
Briton tells of surviving Spain wildfire in car as wife and friends died trying to run to safety
Malcolm Timbrell's wife and their friends are thought to have died when a devastating wildfire tore through their village in Spain.
Framleiðandi opnar sig um leynilegt samband við piparsveininn - „Ég var gjörsamlega niðurbrotin“
📅 13.07.2026 👁️ 0
Framleiðandi opnar sig um leynilegt samband við piparsveininn - „Ég var gjörsamlega niðurbrotin“
Nýjasta dramað í heimi raunveruleikasjónvarps hljómar eins og söguþráðurinn í rómantískri Hollywood-mynd. Framleiðandinn sem á að hjálpa piparsveini v...
„Aukin gjaldtaka á viðkvæman hóp“
📅 13.07.2026 👁️ 0
„Aukin gjaldtaka á viðkvæman hóp“
Landssamband eldri borgara mótmælir harðlega komugjaldi í sjúkraþjálfun. Aukin gjaldtaka á viðkvæman hóp, segir formaður Landssambandsins.Í tilkynning...
„Jáið, fyrir neiarana, ætti að vera nobrainer til þess að útkljá þetta“
📅 13.07.2026 👁️ 0
„Jáið, fyrir neiarana, ætti að vera nobrainer til þess að útkljá þetta“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst um áframhald aðildarviðræðan ætti að vera keppikefli a...
Gæslufólk á útihátíðum þurfi að vera með sjálfstraustið til að stíga inn og vera óþægileg
📅 13.07.2026 👁️ 0
Gæslufólk á útihátíðum þurfi að vera með sjálfstraustið til að stíga inn og vera óþægileg
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar þrjú kynferðisbrot tengd hátíðarhöldum á Kótelettunni á Selfossi aðfaranótt sunnudags, þá var tilkynnt um eitt kynfer...
Sakborningar í Dettifossmálinu njóta nafnleyndar – Smygluðu 14.000 lítrum af amfetamínbasa frá Þýskalandi
📅 13.07.2026 👁️ 0
Sakborningar í Dettifossmálinu njóta nafnleyndar – Smygluðu 14.000 lítrum af amfetamínbasa frá Þýskalandi
Ákæra Héraðssaksóknara í Dettifossmálinu, sem varðar smygl á gífurlegu magni af amfetamínbasa með Dettifossi, flutningaskipi Eimskips, hingað til land...
Um 1000 hektarar brunnir skammt frá París
📅 13.07.2026 👁️ 0
Um 1000 hektarar brunnir skammt frá París
Enn logar glatt í Fontainebleau-skóginum sunnan við París. Yfirvöld hafa nú staðfest að nærri 1.000 hektarar, eða 10 ferkílómetrar, eru nú brunnir. Þa...
Morð á breskri stjórnmálakonu rannsakað sem hryðjuverk – grunaður handtekinn á ný
📅 13.07.2026 👁️ 0
Morð á breskri stjórnmálakonu rannsakað sem hryðjuverk – grunaður handtekinn á ný
Morð á breskri stjórnmálakonu rannsakað sem hryðjuverk – grunaður handtekinn á ný Fréttin13. júlí 2026ErlentLeave a Comment Ann Widdecombe. Lögregla g...
Dæmdur fyrir heimilis­of­beldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl - Vísir
📅 13.07.2026 👁️ 0
Dæmdur fyrir heimilis­of­beldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl - Vísir
Honum var gefið að sök að ógna á alvarlegan og endurtekinn hátt lífi, heilsu og velferð konunnar með því að kýla hana ítrekað í augað, taka hana kverk...
Opið fyrir umsóknir fyrir viðburði á Menningarnótt
📅 13.07.2026 👁️ 0
Opið fyrir umsóknir fyrir viðburði á Menningarnótt
Opið er fyrir skráningu atriða á Menningarnótt, afmælis- og borgarhátíð Reykjavíkur, sem haldin verður 22. ágúst.Í tilkynningu Reykjavíkurborgar segir...
Hentu töskum eftir flugferð vegna óþefs
📅 13.07.2026 👁️ 0
Hentu töskum eftir flugferð vegna óþefs
„Við fáum töskurnar með slori og öllu framan á,“ segir Ásdís Elva Kristinsdóttir, sem segir farir sínar ekki sléttar eftir ferðalag með Icelandair frá...
Framkvæmdir að hefjast við hverfi á óbyggðri umferðareyju
📅 13.07.2026 👁️ 0
Framkvæmdir að hefjast við hverfi á óbyggðri umferðareyju
Garðabær hefur óskað eftir tilboðum í eftirlitsverk á Arnarneshálsi vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Í tilkynningu á Útboðsvefnum segir að verkið feli í...
Trump to reinstate naval blockade of Iran ports and impose Strait of Hormuz charge
📅 13.07.2026 👁️ 0
Trump to reinstate naval blockade of Iran ports and impose Strait of Hormuz charge
The US president also says Washington will impose a 20% charge on all cargo shipped through the Strait of Hormuz.
Volkswagen planning to cut up to 100,000 jobs globally
📅 13.07.2026 👁️ 0
Volkswagen planning to cut up to 100,000 jobs globally
The group, which includes Porsche and Audi, has faced a steep fall in profits and tough competition from China.
Telja Sæ­var hafa verið tengi­lið Kastriots við skip­verjana - Vísir
📅 13.07.2026 👁️ 0
Telja Sæ­var hafa verið tengi­lið Kastriots við skip­verjana - Vísir
Ákæra héraðssaksóknara í Dettifossmálinu var afhent fjölmiðlum í dag. Kastriot og Sævar Örn eru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa ...
Leiðtogar hinna viljugu hittast - níu lönd gera bandalag um eldflaugavarnir
📅 13.07.2026 👁️ 0
Leiðtogar hinna viljugu hittast - níu lönd gera bandalag um eldflaugavarnir
Minnst 25 þjóðarleiðtogar í bandalagi hinna viljugu - þjóðabandalagi til stuðnings Úkraínu í stríðinu við Rússa, eru komnir til Parísar til að ræða um...
ÖSE sinnir kosningaeftirliti vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
📅 13.07.2026 👁️ 0
ÖSE sinnir kosningaeftirliti vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
Fulltrúar Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) eru á leið til landsins til að undirbúa kosningaeftirlit vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarvi...
Bestu hlut­verk Sams Neill: And­kristur, forn­leifa­fræðingur og menn á barmi sturlunar - Vísir
📅 13.07.2026 👁️ 0
Bestu hlut­verk Sams Neill: And­kristur, forn­leifa­fræðingur og menn á barmi sturlunar - Vísir
Nigel John Dermot Neill fæddist 14. september 1947 á Norður-Írlandi, sonur enskrar móður og nýsjálensks föður, en fjölskyldan flutti til Cristchurch á...
Berglind borgar meira í vexti en af láninu sjálfu: „Af hverju höfum við sætt okkur við þetta?“
📅 13.07.2026 👁️ 0
Berglind borgar meira í vexti en af láninu sjálfu: „Af hverju höfum við sætt okkur við þetta?“
„Kannski er kominn tími til að hætta að sætta sig við að svona sé þetta bara,“ segir Berglind Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og einn af stofnendum...
Fær vægan dóm fyrir hrottalegt ofbeldi gegn sambýliskonu sinni
📅 13.07.2026 👁️ 0
Fær vægan dóm fyrir hrottalegt ofbeldi gegn sambýliskonu sinni
Maður í Reykjavík hefur verið sakfelldur fyrir brot í nánum sambandi gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni. Honum var gefið að sök að hafa aðfaranótt 4....
UK-Switzerland deal to scrap roaming charges and allow Britons to use e-gates
📅 13.07.2026 👁️ 0
UK-Switzerland deal to scrap roaming charges and allow Britons to use e-gates
The UK signs a new services deal with Switzerland it says will increase exports by £5.2bn annually "in the long run".
Byggja upp ferðaþjónustu í flugturni
📅 13.07.2026 👁️ 0
Byggja upp ferðaþjónustu í flugturni
Mikil uppbygging er fyrirhuguð á flugvellinum á Siglufirði. Viking Heliskiing keypti flugturn, þjónustuhús og tækjahús af bænum á 12 milljónir króna. ...
„Stundum koma upp at­vik“ - Vísir
📅 13.07.2026 👁️ 0
„Stundum koma upp at­vik“ - Vísir
Um ræðir útiklefana í Laugardalslaug og Vesturbæjarlaug og sama fyrirkomulag tekur einnig gildi í Sundhöll Reykjavíkur þegar framkvæmdum við klefana þ...
„Má ætla að málin séu fleiri en þau sem rata í fréttirnar“
📅 13.07.2026 👁️ 0
„Má ætla að málin séu fleiri en þau sem rata í fréttirnar“
Fjögur kynferðisbrot eru til rannsóknar eftir útihátíðir um helgina.Lögreglan á Suðurlandi rannsakar þrjú kynferðisbrot tengd bæjarhátíðinni Kótilettu...
Aníta Briem sögð hafa sofið hjá meðleikara
📅 13.07.2026 👁️ 0
Aníta Briem sögð hafa sofið hjá meðleikara
Aníta Briem sögð hafa sofið hjá meðleikara „Hann er ein stærsta gjöf sem ég hef fengið í lífinu mínu“ Mynd: Kazuma Takigawa Aníta Briem, ein fjölhæfas...
Komst í kassagítarsgarm og dósapoka
📅 13.07.2026 👁️ 0
Komst í kassagítarsgarm og dósapoka
Prestur við hvítasunnukirkjuna Fíladelfíu í Reykjavík segir þjóf ekki hafa haft mikið upp úr innbroti í kirkjuna um helgina. Hann hafi greinilega aldr...
Íslenskt fyrirtæki nýtir gervigreind til að gera eina rosalegustu auglýsingu ársins
📅 13.07.2026 👁️ 0
Íslenskt fyrirtæki nýtir gervigreind til að gera eina rosalegustu auglýsingu ársins
Íslenskt fyrirtæki nýtti sér gervigreindina til hins ítrasta til að vekja athygli á fyrirtækinu. Það tókst svo sannarlega því 65 þúsund áhorf eru á au...
Fullyrðir að meðlimur Rolling Stones hafi hætt að telja þegar bólfélagarnir voru orðnir 1.800
📅 13.07.2026 👁️ 0
Fullyrðir að meðlimur Rolling Stones hafi hætt að telja þegar bólfélagarnir voru orðnir 1.800
Þegar hljómsveitin Rolling Stones komu fram á sjónarsviðið árið 1962 fengu þeir orðspor sem hinir fullkomnu „bad boys“ í rokkinu og ræktuðu með sér up...
Missti af 25 árum með elsta syni sínum eftir að hafa gefið hann til ættleiðingar
📅 13.07.2026 👁️ 0
Missti af 25 árum með elsta syni sínum eftir að hafa gefið hann til ættleiðingar
Leikarinn góðkunni Sam Neill, sem lést á mánudag 78 ára að aldri, talaði oft um að ein stærsta eftirsjáin í lífi hans hefði verið að missa af uppvexti...
Segja Harry ekki hafa efni á að greiða lögfræðikostnað sinn - Stórstjarna gæti komið til bjargar
📅 13.07.2026 👁️ 0
Segja Harry ekki hafa efni á að greiða lögfræðikostnað sinn - Stórstjarna gæti komið til bjargar
Harry Bretaprins hefur átt viðburðaríka viku og gæti nú þurft að reiða sig á vini eins og tónlistarmanninn Elton John til að hjálpa honum að greiða mi...
Ekki stökkva í Eyvindará
📅 13.07.2026 👁️ 0
Ekki stökkva í Eyvindará
Vorið var seint á ferðinni austanlands en nú er sumarið skollið á af fullum þunga. Á Egilsstöðum er vinsælt að stökkva út í Eyvindará á góðviðrisdögum...
Líkir VAR í fótbolta við „skuggastjórn“ ESB – Segir kjósendur eiga að hafna valdi sérfræðinga bakvið skjáinn
📅 13.07.2026 👁️ 0
Líkir VAR í fótbolta við „skuggastjórn“ ESB – Segir kjósendur eiga að hafna valdi sérfræðinga bakvið skjáinn
Arnar Þór Jónsson gagnrýnir notkun VAR (Video Assistant Referee) í knattspyrnu og segir tæknina vera að eyðileggja íþróttina. Í færslu á Facebook segi...
Hafa fengið á áttunda hundrað fyrirspurnir vegna hvalveiða við Ísland
📅 13.07.2026 👁️ 0
Hafa fengið á áttunda hundrað fyrirspurnir vegna hvalveiða við Ísland
„Við höfum á undanförnum vikum fengið meira en sjö hundruð fyrirspurnir vegna hvalveiða við Ísland,“ segir Jarle Hetland, yfirmaður samskipta hjá ESA,...
Three arrested over sexual exploitation of an underage girl in South Tenerife
📅 13.07.2026 👁️ 0
Three arrested over sexual exploitation of an underage girl in South Tenerife
Three men have been arrested in Tenerife following a Police investigation into alleged sexual exploitation, prostitution and offences involving the co...