Á þriðjudaginn kemur verður öllu starfsfólki Hilton Nordica og Natura-hótelanna sagt upp, 300 manns. Þetta var tilkynnt á fundi í gær sem Vísir greinir frá og eru uppsagnirnar liður í færslu hótelanna tveggja yfir til Íslandshótela frá hótelkeðjunni Iceland Hotel Collection by Berjaya sem nú stendur fyrir dyrum.
Segir Vísir af því að boðað hafi verið til fundarins í gær með tölvupósti og hafi fulltrúar mannauðsdeildar Berjaya farið með fundarstjórn. Hafi starfsfólk lýst óánægju sinni með skamman fyrirvara.
Boðað hefur verið til nýs fundar í fyrramálið.
Íslandshótel taka við rekstrinum í haust
Eins og greint var frá hér á mbl.is undir mánaðamótin síðustu munu Íslandshótel taka við rekstri hótelanna tveggja 1. september og hefur fyrirtækið undirritað samninga við Reiti fasteignafélag um rekstur þeirra til sautján ára.
„Það er stórt og spennandi skref fyrir Íslandshótel að taka við rekstri þessara sögufrægu hótela sem sett hafa mark sitt á íslenska ferðaþjónustu í áratugi,“ var þá haft eftir Ólafi D. Torfasyni, stofnanda og stjórnarformanni Íslandshótela, í tilkynningu.