Slysið er sagt hafa átt sér stað á sunnudagsmorgun í suðvesturhluta Rio de Janeiro og um hafi verið að ræða árekstur tveggja þyrla. Sex hafi látist og var Tree þeirra á meðal. Variety greinir frá þessu og vísar í umfjöllun CNN Brazil.
Tree birti síðast efni frá ferð sinni í Brasilíu á samfélagsmiðlum sínum í gær.