Olía hækkar um 7% eftir viðvörun Trumps um langt hafnarbann
Olíuverð hækkaði um meira en sjö prósent og náði fjögurra ára hámarki yfir 126 dölum í morgun eftir að Donald Trump varaði við því að hafnarbann Bandaríkjanna á íranskar hafnir gæti staðið yfir í marga mánuði og fréttir bárust af því að hann fengi tillögur um hugsanlegar nýjar hernaðarárásir.
Þrátt fyrir að stjórnvöld í Teheran hafi lagt fram nýja tillögu í þessari viku um að opna hið mikilvæga Hormússund að nýju, segir Bandaríkjaforseti Íranir séu ekki semja í góðri trú. The Wall Street Journal sagði að hann hefði sagt þjóðaröryggisfulltrúum að búa sig undir langt hafnarbann til að neyða Írani til að hætta við kjarnorkuáætlun sína.
Á fundi með stjórnendum olíufyrirtækja á þriðjudag ræddi Trump viðleitni „til að létta á alþjóðlegum olíumörkuðum og skref sem við gætum tekið til að halda núverandi hafnarbanni áfram í marga mánuði ef þörf …