Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðhátíðarnefnd en þar segir að forritið sé aðgengilegt bæði í App Store og Google Play og verði uppfært reglulega eftir því sem nær dregur hátíðinni.
Markmiðið með Dalnum er að gera upplifun gesta enn betri með því að safna öllum helstu upplýsingum um Þjóðhátíð á einn stað hvort sem um er að ræða dagskrá, tilkynningar, samgöngur eða þjónustu.
„Við viljum gera það eins einfalt og hægt er fyrir gesti að njóta Þjóðhátíðar. Með Dalnum eru allar helstu upplýsingar á einum stað og gestir geta skipulagt sína eigin hátíð, fengið áminningar um dagskrárliði og fylgst með nýjum upplýsingum eftir því sem nær dregur. Þetta er þjónusta sem við teljum að muni bæta upplifun gesta til muna,“ segir Jónas Guðbjörn, formaður Þjóðhátíðarnefndar.
Eftir því sem nær líður að hátíðinni munu fleiri gagnlegir eiginleikar bætast í forritið. Þar á meðal verður hægt að fylgjast með staðsetningu strætisvagna í rauntíma og sjá hvenær næsti vagn er væntanlegur til og frá Herjólfsdal.
Einnig verða upplýsingar um fyrirtæki og þjónustu í Vestmannaeyjum, opnunartímar, staðsetningar á korti og ýmsar aðrar hagnýtar upplýsingar. Þá verður hægt að hlusta á öll Þjóðhátíðarlögin til þessa í forritinu.