Norska flugfélagið Norwegian hefur staðið við veðmál sitt við breska flugfélagið British Airways og breytt um forsíðumynd á Instagram-reikningi sínum. Vörumerki British Airways prýðir nú síðuna.
Norwegian efndi til veðmálsins á dögunum í aðdraganda leiks Englands og Noregs á HM í knattspyrnu karla sem fór fram í gær. Ef Noregur ynni myndi British Airways breyta sinni forsíðumynd í merki Norwegian og öfugt.
England sigraði Noreg 2-1 í gærkvöld og þar með tapaði Norwegian veðmálinu. Norwegian eru menn orða sinna og lítur Instagram-reikningur þeirra svona út í dag: