Niður­gangur, æla og nóg af pungspörkum - Vísir

Niður­gangur, æla og nóg af pungspörkum - Vísir

Niður­gangur, æla og nóg af pungspörkum - Vísir

Jackass: Best and Last er fimmta kvikmyndin í fullri lengd frá Grasösnunum og sú tíunda ef með eru taldar hliðarmyndin Bad Grandpa (2013), þrjár myndir með aukaefni og virðingarvottur þeirra til áhættugoðsagnarinnar Evel Knievel sem kom út 2008.

Grasasnarnir bjóða áhorfendum með sér í einn lokatúr.

Leikstjórinn Jeff Tremaine heldur um leikstjórnartaumana sem fyrr og framleiðir jafnframt myndina með Johnny Knoxville, Spike Jonze og Shönnu Zablow Newton.

Öllum helstu Jackass-meðlimunum bregður fyrir í myndinni: Johnny Knoxville, Steve-O, Chris Pontius, Jason „Wee-Man“ Acuña, Dave England, Danger Ehren, Preston Lacy og Bam Margera (í gömlu myndefni) auk nýju meðlimanna Sean „Poopies“ McInerney, Zach Holmes, Jasper Dolphin, Rachel Wolfson og Dark Shark.

Ólíkt fyrri myndunum fjórum er Jackass: Best and Last úrval af bestu atriðum Grasasnanna frá síðustu þrjátíu árum í bland við nokkrar nýjar senur, viðtöl við meðlimi og áður óséð myndefni frá upphafsárum hópsins.

Jackass: Best and Last var frumsýnd 26. júní síðastliðinn og er sýnd í Smárabíói og Sambíóunum.

Þrjátíu ár af fíflagangi

Philip John Clapp útskrifaðist úr menntaskóla 1989, flutti til Kaliforníu til að verða leikari og tók upp sviðsnafnið Johnny Knoxville. Honum gekk erfiðlega að fá vinnu þannig hann hóf að senda hugmyndir sínar að greinum á hin ýmsu tímarit. 

Ein þeirra gekk út að Knoxville prófaði hin ýmsu sjálfsvarnartæki á sér sjálfum: rafbyssu, piparúða, stuðbyssu og 38 kalíbera skammbyssu. Knoxville fór á milli tímarita með hugmyndina en var alls staðar hafnað því gjörningurinn þótti of hættulegur.

Knoxville er forystusauður Grasasnanna.

Það var ekki fyrr en 1996 sem Jeff Tremaine, ritstjóri hjólabrettatímaritsins Big Brother, hafði samband og sannfærði Knoxville um að taka gjörninginn upp á myndavél sem þeir og gerðu.

Þessi gjörningur varð kveikjan að því að gera raunveruleikaþætti sem fælu í sér blöndu af áhættuatriðum og fíflagangi. Tremaine skaut prufuþátt í samvinnu við Knoxville og leikstjórann Spike Jonze sem MTV keypti réttinn að. Þar með fæddust þættirnir Jackass.

Snjóbrettakappinn Dave England, hjólabrettakappinn Chris Pontius, trúðurinn Steve-O og Jason „Wee-Man“ Acuña höfðu unnið og skrifað fyrir Big Brother á þessum árum og gengu til liðs við teymið. Hjólabrettahópurinn CKY hafði skömmu fyrr vakið athygli Tremaine og þaðan komu Bam Margera og Ryan Dunn. Síðustu mennirnir sem bættust í hópinn voru áhættuleikarinn Ehren McGhehey og Preston Lacy.

Steve-O, Pontius, England, Wee Man, Tremaine, Knoxville, Margera, McGhehey og Lacy í góðum gír.

Raunveruleikaþættirnir Jackass gengu í þrjár stuttar þáttaraðir frá haustinu 2000 til sumarloka 2001. Yfir þessa 25 þætti skemmtu þeir áhorfendum með blöndu af fáránlegum áhættuatriðum, neðanbeltishúmor og hrekkjum í falinni myndavél.

Þættirnir urðu ekki aðeins gríðarvinsælir heldur höfðu Grasasnarnir mótandi áhrif á grín næstu kynslóða. Fjöldi eftirhermuþátta skaut upp kollinum í kjölfarið, The Dudesons í Finnlandi, Dirty Sanchez í Bretlandi og Rad Girls í Bandaríkjunum. Áhrifa þáttanna gætir enn í dag hjá flestöllum þeim Youtube-urum og TikTok-áhrifavöldum sem sérhæfa sig í hrekkjum og ofsafengnum áhættuatriðum.

Hérlendis þarf ekki að horfa lengra en til sjónvarpsþáttarins 70 mínútur sem hóf göngu sína á Popp Tíví skömmu eftir Jackass. Þættirnir byrjuðu á að leggja höfuðáherslu á tónlist en færðu sig síðan yfir í meiri ærslagang, ógeðsdrykki og falda myndavél.

Fyrsta myndin hefst á áhættuatriði þar sem hópurinn brunaði gegnum reykský í innkaupakerru.Getty

Þó þættir Grasasnanna hefðu runnið sitt skeið var sögu hópsins ekki nærri lokið. Framleiðendurnir lögðu til við Knoxville að hópurinn myndi gera kvikmynd sem lyti sömu lögmálum og þættirnir nema fyrir meiri pening. 

Myndin sló rækilega í gegn og markaði upphaf  kvikmyndaseríu sveinanna. Í Jackass Number Two (2006) gengu strákarnir enn lengra með hættulegri áhættuatriðum og í þeirri þriðju, Jackass 3D (2010), nýtti hópurinn þrívíddartækni og háhraðamyndavélar til að taka atriðin upp á næsta stig. Ári síðar varð hópurinn fyrir miklu áfalli.

Ryan Dunn lést í bílslysi, aðeins 34 ára gamall, eftir að hafa ekið á 180 kílómetra hraða eftir vegi í Pennsylvaníu, farið af veginum og hafnað á tré. Vegna andláts Dunn, hækkandi aldurs sveitarinnar og annarra verkefna þeirra virtist spilið búið hjá strákunum..

Ellefu árum síðar sneru þeir þó aftur með Jackass Forever (2022) en þar dró til tíðinda að tvennu leyti. Annars vegar var Bam Margera ekki með í myndinni eftir að hafa verið rekinn af tökustað vegna áfengisdrykkju og hins vegar bættist nýtt blóð í hópinn með tilkomu Sean „Poopies“ McInerney, Zach Holmes, Jasper Dolphin, Eric Manaka og Rachel Wolfson.

Knoxville gekk nærri af sér dauðum þegar hann lét naut stanga sig í fjórðu myndinni.

Við tökur á henni voru gömlu mennirnir minntir rækilega á að þeir væru hvorki ungir né ódauðlegir. Steve-O braut á sér viðbein, Ehren reif á sér annað eistað og Knoxville slasaðist alvarlega eftir að hafa verið stangaður af nauti: braut rifbein og úlnlið, fékk heilahristing og blæðingu inn á heila. Þar með virtist Jackass Forever binda slaufu á kvikmyndasögu Jackass - sterkur svanasöngur.

Svo var þó ekki raunin.

Öflug endurvinnsla og lélegar viðbætur

En núna er loksins komið að lokamynd Grasasnanna (þar til Knoxville snýst hugur á gamalsaldri). Hópurinn hefur hrist örlítið upp í formúlunni eftir hverja mynd en þessi síðasta sker sig hvað mest frá restinni. Jackass: Best and Last inniheldur nefnilega að megninu til eldra efni, brot af því besta gegnum tíðina, þó inn á milli komi nokkur ný atriði, stutt kynningarbrot og áður óséð efni.

Hérna eru ódauðlegir sketsar eins og kúkakokteill Steve-O úr þriðju myndinni, rauða eldflaug Knoxville, ristilspeglun Ryan Dunn úr fyrst myndinni og alls konar annað góðgæti. Það er ekki hægt að kvarta yfir slíku gæðaefni og greinilega farið vinna í að velja atriðin vandlega og raða þeim rökrétt upp. 

Steve-O í kamrinum.

Besta atriði myndarinnar er hins vegar upphafsatriðið, áður óséð fæðing Jackass, þar sem Johnny Knoxville klæðir sig í skotvesti og skýtur sig í bringuna með skammbyssu. Áhættuatriðið er frekar einfalt og maður veit hvernig það fer en það er samt eitthvað algjörlega stórbrotið við að sjá þennan háskaleik, sérstaklega af því maður skynjar óttann hjá bæði Knoxville og tökuliðinu.

Fyrir þá sem eru að koma nýir að seríunni er myndin frábær kynning á hópnum og sögu hans. Hins vegar er auðvelt að ímynda sér að aðdáendur seríunnar verði fyrir vonbrigðum með grimma endurnýtinguna. 

Steve-O jafnar sig á blöðruhálskirtilsskoðun.

Það sem veldur líka hvað mestum vonbrigðum er að nýja efnið sem hópurinn tók upp fyrir myndina er ekki ýkja merkilegt. Gömlu gaurarnir eru komnir á sextugsaldur og geta augljóslega ekki spriklað eins og forðum daga. 

Bróðurparturinn af nýja efninu er því undirlagður kúkahúmor, Steve-O fer í ristilskoðun hjá kjaftforu vélmenni og treður borðtenniskúlu inn í rassgatið á sér. Eitt atriðið inniheldur sömuleiðis ógnvænlega blöndu af hægðarlosandi efnum, glærum plastgöllum og partýleiknum Twister.

Rafbyssubrúðuleikur úr fimmtu myndinni.

Maður fær á tilfinninguna að meðlimirnir hafi ekki lagt sig alla fram og haldið að gamla efnið myndi bera myndina uppi (sem það gerir að mestu leyti). Annað sem maður skilur heldur ekki er hvað nýju meðlimirnir eru illa nýttir eftir að hafa fengið stórt hlutverk í síðustu mynd, núna fá þau sáralítið að gera nema Poopies greyið sem er pyntaður rækilega neðan- og ofanbeltis.

Myndinni lýkur svo með upprunalega hópnum (fyrir utan Bam Margera og Ryan Dunn heitinn) í risastórri innkaupakerru, vísun í upphafsatriði fyrstu myndarinnar, þar sem þeir þeysast gegnum þrautabraut með púðurfallbyssum og stórum sprengingum. Þó þeir séu gamlir ætla þeir að enda þetta með sprengju.

Strákapör, háskaleikir og óvæntur sinubruni

Þótt myndin sé ekki hnökralaus er gaman að dvelja með þessum félögum í eitt lokaskipti. Barnsleg leikgleðin, strákslegur fíflagangurinn og þórðargleðin skín alltaf í gegn. Það að fara svona gegnum sögu hópsins fær áhorfendur til að líta um öxl. Við áhorfið var ég sjálfur minntur á bernskubrek og ýmiss prakkarastrik úr æsku.

Um miðbik grunnskólans - milli barndómsins og unglingsáranna - vöndum við Steini, æskuvinur minn, okkur á það í mörg ár að fara heim til hans eftir skóla, fá okkur grillaða samloku og appelsínuþykkni, hlaupa gegnum garðinn hjá nágrönnunum niður í Hljómskálagarð til að leita uppi óskunda. Meðal þess var að klifra í trjám, fara út á Tjörnina ef hún var frosin og skíta í runna (sem var hluti af því sem við kölluðum Villimannaklúbbinn).

Það er fátt betra en að leika sér á ísilagðri Tjörninni.

Sömuleiðis var sérlega gaman að vaða í gegnum garða fólks í gamla Vesturbænum og klifra upp á bílskúra. Í eitt skiptið klifruðum við upp á Landakotsskóla en vorum fældir þaðan niður af Ágústi smíðakennara. Þessi blanda af hinu forboðna og hinu hættulega var eitthvað sem heillaði okkur verulega.

Einhverju sinni vorum við innblásnir af einhverjum nethrekk (mögulega Grasösnunum sjálfum) og vöfðum hundaskít í dagblað, komum því fyrir við útidyr einhvers grunlauss borgara, kveiktum í því, dingluðum bjöllunni og hlupum á brott.

Dagarnir eftir áramót voru ætíð gósentíð því þá gat maður sprengt afganginn af flugeldunum sem lifðu af gamlárskvöld. Þá skutum við rakettum eftir ísilagðri tjörninni og settum litlar bombur í ruslatunnur. Einn kaldan og þurran janúarmorgun þegar við vorum þrettán ára brenndum við okkur á sprengjugleðinni.

Við höfðum farið þrír vinir í sprengjuhug niður í Hljómskálagarð með flugelda. Fyrsta rakettan fór á loft en var eitthvað gölluð og hrapaði strax til jarðar. Fljótlega urðum við varir við reyk og eftir að hafa klöngrast upp brekkuna þá blasti við okkur tugfermetra sinueldur. Einn okkar hljóp inn í eldinn til að slökkva hann án árangurs, síðan hringdum við í neyðarlínuna og flúðum af vettvangi.

Sennilega eiga flestir skemmtilegar sögur sem þessar úr æsku en þar með eru upptalin mín bestu bernskubrek. Grasösnunum í Jackass tókst hins vegar að gera barnalegan fíflagang að ævistarfi sínu frá því þeir voru rétt rúmlega tvítugir og fram á sextugsaldur.

Niðurstaða

Síðan Buster Keaton lagði líf sitt og limi í hættu fyrir bíóið á fyrri hluta síðustu aldar hefur enginn komið nálægt því að fanga slíkan háskaleik á stóra skjánum fyrr en Grasasnarnir komu til sögunnar. Þegar best lætur tekst hópnum að fanga absúrd áhættuatriði sem eru hvergi toppuð nema í Looney Tunes. 

Jackass: Best and Last er ágætis upprifjun á bestu atriðum Grasasnanna og áminning um hvað þeir hafa gert margt skemmtilegt. Aldur þeirra félaga kemur þó í ljós í nýrri atriðum sem einkennast af óvenjumiklu hugmyndaleysi og miskröftugum kúkahúmor.

Kraftleysi nýju atriðanna ýkist sömuleiðis því þau eru stöðugt borin saman við eldra efni. Aldurinn er að vissu leyti afsökun en stundum er þetta ekki spurning um aldur heldur metnað, að því leytinu til virðast Grasasnarnir saddir.

#niðurgangur #nóg #pungspörkum #vísir #æla


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262906662d/nidur-gangur-aela-og-nog-af-pungsporkum

📰 Aðrar fréttir

Inga Lind selur miðborgarperluna
📅 13.10.2026 👁️ 1
Inga Lind selur miðborgarperluna
Inga Lind Karlsdóttir, ein eigenda Skot Productions, hefur sett einbýlishús sitt við Barónsstíg 16 í miðborginni á sölu. Eignin er 155,1 fm að stærð b...
Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga
📅 13.10.2026 👁️ 1
Fyrsti alvöru hvellur vetrarins framundan – Þetta þurfa landsmenn að hafa í huga
Fyrsti óveðurshvellur vetrarins er í uppsiglingu en eins og kunnugt er hefur Veðurstofa Íslands gefið út gular og appelsínugular viðvaranir fyrir stór...
Emergency calls from botched Christa Pike execution released to US media
📅 13.10.2026 👁️ 0
Emergency calls from botched Christa Pike execution released to US media
A series of calls, obtained by the Associated Press, reveal emergency services were delayed in reaching Pike.
Há­skólarnir verði betur tengdir með breyttri strætó­leið - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 0
Há­skólarnir verði betur tengdir með breyttri strætó­leið - Vísir
Leið 8 mun samkvæmt tilkynningu framvegis hafa viðkomu við Háskóla Íslands, Lækjartorg og Skúlagötu auk Háskólans í Reykjavík og Gömlu Hringbrautar lí...
Bjarni yfir 10 prósentin í Skaga
📅 13.10.2026 👁️ 0
Bjarni yfir 10 prósentin í Skaga
Sjávarsýn, eignarhaldsfélag Bjarna Ármannssonar, er orðið eigandi að meira en tíu prósenta hlut í Skaga hf. eftir að hafa aukið hlutafjáreign sína í g...
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind
📅 13.10.2026 👁️ 0
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind
Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind Donald Trump stimplar þá sem óvini sem halda áfram að nota hug­takið gervi­greind en ekki „ofur­greind“...
Scientists are analysing coastal litter to identify its sources and protect our beaches and wildlife
📅 13.10.2026 👁️ 0
Scientists are analysing coastal litter to identify its sources and protect our beaches and wildlife
Scientists are investigating the origins of rubbish found on 30 beaches across the Canary Islands as part of a European environmental research project...
Biðja fólk um að huga að veðri og flýta eða seinka ferðalögum
📅 13.10.2026 👁️ 0
Biðja fólk um að huga að veðri og flýta eða seinka ferðalögum
Lögregluembættin á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra hafa sent frá sér tilmæli til vegfarenda fyrir óveðrið sem er að vænta á morgun. Appelsínugular v...
Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 0
Þurftu að kyrr­setja flug­vél vegna veggjalúsa - Vísir
Veggjalýsnar fundust fremst á almennu farrými vélarinnar í flugi Qantas þann 9. október en þetta kemur fram í frétt Guardian um málið. Taka þurfti vél...
Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum - Vísir
Eftir að Nóbelsnefndin tilkynnti á fimmtudaginn að Anne Carson hefði hlotið bókmenntaverðlaunin þaut menningarblaðamaður Vísis vestur á Ægisíðu í von ...
Canary Islands Football Nights: Following AFCON's November qualifiers across time zones
📅 13.10.2026 👁️ 2
Canary Islands Football Nights: Following AFCON's November qualifiers across time zones
November's AFCON qualifiers fall after the Canary Islands return to winter time, keeping the islands an hour behind mainland Spain. A fixture advertis...
Lognið fyrir storminn
📅 13.10.2026 👁️ 2
Lognið fyrir storminn
Landsmenn geta átt von á hægum vindi en nokkurri rigningu í dag. Íbúar á Norður- og Austurlandi þurfa þó að bíða fram yfir hádegi áður en blotnar eitt...
Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða - Vísir
Gular og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn, en gert er ráð fyrir komu mjög djúprar lægðar sem á að ganga yfir lan...
Úkraínskt skip sökk í drónaárás
📅 13.10.2026 👁️ 2
Úkraínskt skip sökk í drónaárás
Úkraínskt skip sökk í drónaárás í morgun þegar árásir voru gerða á tvö úkraínsk skip í Svartahafi.Rumen Radev forsætisráðherra Búlgaríu greindi frá þe...
New bus routes in Adeje carry over 10,000 passengers in just five weeks
📅 13.10.2026 👁️ 2
New bus routes in Adeje carry over 10,000 passengers in just five weeks
Two new municipal bus routes in Adeje have recorded more than 10,000 passenger journeys in their first five weeks of operation, with the service conne...
Mótmælanda hent út af Trump samkomu meðan forsetinn kallaði hann feitan og sagði hann þurfa í megrun
📅 13.10.2026 👁️ 2
Mótmælanda hent út af Trump samkomu meðan forsetinn kallaði hann feitan og sagði hann þurfa í megrun
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði mótmælanda feitan og sagði hann þurfa að fara í megrun þegar lögreglumenn fylgdu viðkomandi út af samkomu forse...
Hafa gert á­rásir á sex orku­mann­virki eftir yfir­lýsingu Trump - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Hafa gert á­rásir á sex orku­mann­virki eftir yfir­lýsingu Trump - Vísir
Að sögn Selenskí hafa bensínstöðvar, orkuinnviðir og fleiri mannvirki orðið fyrir árásum og alls hafa 30 slasast. Í viðtali við Fox News segir hann að...
TUESDAY WEATHER: Sunshine and temperatures up to 28°C in the Canary Islands today
📅 13.10.2026 👁️ 2
TUESDAY WEATHER: Sunshine and temperatures up to 28°C in the Canary Islands today
The Canary Islands can look forward to another day of pleasantly warm October temperatures today, Tuesday, with sunny intervals across much of the arc...
Carney hvetur til samstöðu viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta
📅 13.10.2026 👁️ 3
Carney hvetur til samstöðu viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta
Alberta er fjórða stærsta fylki Kanada og þar búa um fimm milljónir íbúa. Skoðanakannanir benda til þess að aðeins um fjórðungur íbúa Alberta vilji fu...
Russia's offensive ability is broken, Kyiv's former top general tells BBC
📅 13.10.2026 👁️ 4
Russia's offensive ability is broken, Kyiv's former top general tells BBC
In his first interview since being forced from his post, Gen Syrskyi speaks about Ukraine's future in the war.
Segja árásir á gagnaver hafa þaggað niður í rússneskum áróðursbottum
📅 13.10.2026 👁️ 4
Segja árásir á gagnaver hafa þaggað niður í rússneskum áróðursbottum
Nokkrir bandamenn Úkraínu og netnotendur segja að snarlega hafi dregið úr rússneskum áróðri og upplýsingaóreiðu á netinu. Ástæðan er sögð nýlegar árás...
BBC's Orla Guerin travels with Yemen's southern national security forces through desert battlefield
📅 13.10.2026 👁️ 2
BBC's Orla Guerin travels with Yemen's southern national security forces through desert battlefield
Orla Guerin travelled through Yemen, with forces loyal to its internationally recognised government, to a remote desert battlefield where Houthi rebel...
Karlmaður lést við fall úr rússíbana
📅 13.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést við fall úr rússíbana
Karlmaður lést og nokkrir slösuðust eftir rússíbanaslys í skemmtigarði Six Flags í Georgíu í Bandaríkjunum í gær.CNN segir að maðurinn hafi látist þeg...
Hútar vara Bandaríkin við að veita Sádi-Aröbum hernaðarlegan stuðning
📅 13.10.2026 👁️ 5
Hútar vara Bandaríkin við að veita Sádi-Aröbum hernaðarlegan stuðning
Hútar hafa varað Bandaríkjastjórn við því að blanda sér inn í stríðsátökin milli Húta og Sádi-Arabíu. Mohammed Al Bukhaiti, háttsettur maður í skæruli...
UK growth upgraded but energy prices and rates to bite in 2027
📅 13.10.2026 👁️ 4
UK growth upgraded but energy prices and rates to bite in 2027
The IMF report comes as final preparations are being made to the first Budget under Prime Minister Andy Burham.
UK growth forecast upgraded but energy prices and rates to hit in 2027
📅 13.10.2026 👁️ 2
UK growth forecast upgraded but energy prices and rates to hit in 2027
The prediction from the IMF comes as final preparations are being made to the first Budget under Prime Minister Andy Burham.
Why the Prime Minister wants to talk about Brexit again
📅 13.10.2026 👁️ 4
Why the Prime Minister wants to talk about Brexit again
For the first time since the UK left the EU, we have a prime minister who will "unflinchingly" debate Brexit, says the BBC's political editor Chris Ma...
Hundreds more prisoners to be freed in second phase of early release scheme
📅 13.10.2026 👁️ 5
Hundreds more prisoners to be freed in second phase of early release scheme
Second tranche of prisoners will include those serving up to two and a half years for crimes.
Leggur til að Ísland skapi sér sérstöðu á sviði gervigreindar
📅 13.10.2026 👁️ 5
Leggur til að Ísland skapi sér sérstöðu á sviði gervigreindar
Halla Tómasdóttir forseti Íslands hefur verið í alþjóðlegri nefnd um gervigreind síðan í sumar. Hún segir markmið nefndarinnar að ræða hvernig hægt sé...
Jarþrúður Ásmundsdóttir nýr formaður Jafnréttissjóðs
📅 13.10.2026 👁️ 4
Jarþrúður Ásmundsdóttir nýr formaður Jafnréttissjóðs
Jarþrúður Ásmundsdóttir verður formaður Jafnréttissjóðs Íslands að skipan Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Á vef Stjórnarráðsins segir ...
Hvetur nöfnu sína til að fletta Gest­gjafanum - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 5
Hvetur nöfnu sína til að fletta Gest­gjafanum - Vísir
Tilefni innsendu greinarinnar er viðtal þar sem rætt var við formann Blaðamannafélags Íslands í einum þátta blaðamannsins Jakobs Bjarnars á Vísi sem b...
„Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 5
„Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ - Vísir
Tilefni innsendu greinarinnar er viðtal þar sem rætt var við formann Blaðamannafélags Íslands í einum þátta blaðamannsins Jakobs Bjarnars á Vísi sem b...
Publicly owned rail is popular. But is it making the trains run on time?
📅 12.10.2026 👁️ 4
Publicly owned rail is popular. But is it making the trains run on time?
Meeting travellers' expectations could be challenging, experts warn.
One dead, several others hurt on Six Flags rollercoaster in Georgia
📅 12.10.2026 👁️ 4
One dead, several others hurt on Six Flags rollercoaster in Georgia
Aerial footage at the park after the incident shows a stuck rollercoaster with riders being helped off.
Heating oil customers face tough winter despite shake-up promise
📅 12.10.2026 👁️ 4
Heating oil customers face tough winter despite shake-up promise
Heating oil customers facing soaring bills are promised better regulation of the sector by the government.
Spæjari, klámstjarna og þingkona - Ótrúlegur ferill konunnar sem elskar að vera ögrandi
📅 12.10.2026 👁️ 4
Spæjari, klámstjarna og þingkona - Ótrúlegur ferill konunnar sem elskar að vera ögrandi
Þegar hin ungverska Ilona Staller gekk upp að altarinu aðeins tvítug að aldri árið 1971 lýsti presturinn henni sem sorgmæddustu brúði sem hann hefði n...
Breaking Bad-stjarna látin aðeins 34 ára að aldri
📅 12.10.2026 👁️ 4
Breaking Bad-stjarna látin aðeins 34 ára að aldri
Leikarinn RJ Mitte er látinn, 34 ára að aldri, en hann sló í gegn í verðlaunaþáttunum Breaking Bad þar sem hann fór með hlutverk Walter 'Flynn' White ...
Er bókun 35 tækniútfærsla eða varðar hún við stjórnarskrána?
📅 12.10.2026 👁️ 4
Er bókun 35 tækniútfærsla eða varðar hún við stjórnarskrána?
Tekist er á um bókun 35 á Alþingi þessa dagana og hefur mikið verið rætt hvort hún sé í tæknileg útfærsla eða hvort hún varði við stjórnskrá Íslands. ...
Á­kveðið á­lag sem maður sé undir án þess að fatta það - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Á­kveðið á­lag sem maður sé undir án þess að fatta það - Vísir
Var þetta meðal þess sem snert var á í dag þar sem Rósa var gestur í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni. Hún sagðist fyrst hafa kynnst tækninni í heimsókn...
Sonur Walter White er látinn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Sonur Walter White er látinn - Vísir
Kemur þetta meðal annars fram í umfjöllun TMZ um andlátið en RJ lést í heimabæ sínum, Brownsville, í Texas-fylki í Bandaríkjunum. Þá standi rannsókn á...
RJ Mitte er látinn - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
RJ Mitte er látinn - Vísir
Kemur þetta meðal annars fram í umfjöllun TMZ um andlátið en RJ lést í heimabæ sínum, Brownsville, í Texas-fylki í Bandaríkjunum. Þá standi rannsókn á...
Telur ólíklegt að vopnahlé Trumps hafi verið raunverulegt
📅 12.10.2026 👁️ 4
Telur ólíklegt að vopnahlé Trumps hafi verið raunverulegt
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir ólíklegt að vopnahlé á milli Rússa og Úkraínumanna, sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti u...
„Kjarnorkuvopnaógn meiri en frá tímum kalda stríðsins“
📅 12.10.2026 👁️ 4
„Kjarnorkuvopnaógn meiri en frá tímum kalda stríðsins“
Kjarnorkuógn hefur ekki verið meiri síðan á hátindi kalda stríðsins, að sögn Izumi Nakamitsu, framkvæmdastjóra afvopnunarmála hjá Sameinuðu þjóðunum. ...
Breaking Bad actor RJ Mitte dies aged 34
📅 12.10.2026 👁️ 4
Breaking Bad actor RJ Mitte dies aged 34
Mitte, who lived with cerebral palsy, drew on his own experience for his role in the Emmy-winning drama series.
RJ Mitte: Breaking Bad actor dies aged 34
📅 12.10.2026 👁️ 0
RJ Mitte: Breaking Bad actor dies aged 34
Mitte, who lived with cerebral palsy, starred as Walter White Jr in the Emmy-winning drama series.
Lætur nöfnu sína heyra það vegna ummæla hennar um Gestgjafann - „Tímasetningin gerir þetta verra“
📅 12.10.2026 👁️ 4
Lætur nöfnu sína heyra það vegna ummæla hennar um Gestgjafann - „Tímasetningin gerir þetta verra“
Staða hlaðvarpa á Íslandi hefur mikið verið til umræðu undanfarið eftir að Fjölmiðlanefnd skoraði á nokkur vinsælustu hlaðvörp landsins að skrá sig fo...
Legally Blonde-stjarna hand­tekin sökuð um að hafa bitið flug­freyju - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Legally Blonde-stjarna hand­tekin sökuð um að hafa bitið flug­freyju - Vísir
Er það bandaríski miðillinn TMZ sem greinir frá en þar segir að Selma Blair hafi verið um borð í vél flugfélagsins Delta Airlines á leið til John F. K...
Uppsagnir í hverjum mánuði
📅 12.10.2026 👁️ 4
Uppsagnir í hverjum mánuði
Verulega hefur hægt á í byggingariðnaði undanfarið og íbúðum í byggingu fækkað líkt og Spegillinn hefur fjallað um. Hátt í 1.900 nýjar íbúðir eru tilb...
Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánar­tíðni sjúk­linga - Vísir
📅 12.10.2026 👁️ 4
Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánar­tíðni sjúk­linga - Vísir
Helga Rósa Másdóttir formaður FÍS skrifar meðal annars um það í greininni að undirmannaðar deildir geti haft mikið að segja um öryggi sjúklinga og afd...
Why Moscow is staying tight-lipped on Trump's energy ceasefire
📅 12.10.2026 👁️ 4
Why Moscow is staying tight-lipped on Trump's energy ceasefire
While Ukraine's Volodymyr Zelensky suggests he would sign up to a ceasefire on energy infrastructure, Russia has said little.