Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem er gefið að sök að hafa reynt að bana öðrum manni í félagi við tvo aðra með því að stinga hann í rasskinn með óþekktu stunguvopni í bílakjallara á Höfðatorgi í mars.
Annar meðsakborninga hans hafði þá þegar ekið á manninn á mikilli ferð og hinn barið hann ítrekað með óþekktu áhaldi.
Maðurinn hefur verið í gæsluvarðhaldi frá 20. mars og er gert að sæta varðhaldi til 3. ágúst.
Ljóst að maðurinn hefði látið lífið án læknismeðferðar
Málsatvik eru reifuð í úrskurðinum og kemur þar fram að maðurinn hafi hlotið lífshættulega áverka af atlögunni. Hann hafi meðal annars hlotið lungnamar á báðum lungum, blóðþurrðarlost og brot á upphandleggsbeini auk stungusársins.
Samkvæmt læknisvottorði var ljóst að hann hefði látið lífið hefði hann ekki hlotið þá meðferð sem hann fékk á vettvangi og á bráðamóttöku.
Segist ekki hafa stungið manninn
Hinn meinti árásarmaður neitar sök en kannaðist í skýrslutöku við að hafa verið á vettvangi. Hann kannaðist þó ekki við að hafa átt í átökum og sagðist hafa yfirgefið vettvang glæpsins á meðan á þeim stóð. Hann hafi ekki stungið manninn.
Lögregla bar myndbandsupptöku af árásinni undir hann en þar má sjá árásarmanninn, sem hinn ákærði taldi líkjast sér. Í myndbandinu mátti sjá hann halda á eggvopni en aðspurður sagði hann að hann héldi á afrískum tannbursta.
Í myndbandsupptökunni má sjá bílinn keyra á brotaþola á miklum hraða. Þar næst má sjá manninn með eggvopnið gera atlögu að honum. Við húsleit hjá hinum ákærða var lagt hald á sambærilegan fatnað og lögregla telur varnaraðila hafa verið í þegar á átökum stóð í bílakjallaranum.