„VARÚÐ!“ svo hófst tilkynning frá nágranna íbúðar sem talið er að vændi hafi verið stundað í. Hann varpaði henni upp á vegg hússins með skjávarpa. Tilkynningin var ætluð hugsanlegum vændiskaupendum og var á ensku.
„Þetta hús er undir eftirliti. Hringt verður í lögreglu ef einhver reynir að kaupa þjónustu hér,“ hélt tilkynningin áfram. „Hjálpaðu okkur að halda samfélaginu okkar öruggu.“
Nágrannarnir voru orðnir langþreyttir á ástandinu: stríðum straumi karlmanna sem komu þangað á öllum tímum sólarhringsins. Nágrannar tóku myndir af mönnunum og settu miða á bíla þeirra.
Kínversk kona er grunuð um að hafa rekið vændisstarfsemi í húsinu í Túnunum. Hún er nú búsett í Svíþjóð og var þar til rannsóknar árið 2024, grunuð um skipulagningu vændis. Sú rannsókn var á endanum felld niður. Hún var um tíma eftirlýst hér á landi en sætir nú endurkomubanni.
Gunnar Axel Davíðsson rannsóknarlögreglumaður segir að árið 2024 hafi lögreglan byrjað að verða vör við konur í vændi frá Kína. Þá fór verð á vændi hér á landi lækkandi. „Margar koma frá Spáni, eru með dvalarleyfi á Spáni og koma hingað,“ segir hann um konurnar.
Eru þær þá fyrst og fremst mansalsfórnarlömb?
„Það er það sem okkur grunar helst.“
Kveikur fjallaði ítarlega um vændi á Íslandi í þætti í gærkvöldi. Þátturinn er aðgengilegur í spilaranum hér að ofan.