Peter Murrell hefur verið dæmdur í rúmlega fimm ára fangelsi fyrir að draga sér 400 þúsund pund, 67 milljónir króna, frá Skoska þjóðarflokknum. Murrell er fyrrverandi eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrrverandi fyrsta ráðherra Skotlands.
Murrell var framkvæmdastjóri flokksins frá 2001 til 2023. Hann var dæmdur fyrir að hafa dregið sér fé yfir tólf ára tímabil frá 2010 til 2022 en mestan hluta þess tíma var eiginkonan formaður flokksins og fyrsti ráðherra.
Meðal þess sem hann notaði hið illa fundna fé til að kaupa var lúxushúsbíll, Jagúar-jeppi, Montblanz-pennar, salt- og piparkvörn frá franska merkinu Lalique og 2 kíló af kaffi, að því er segir í frétt Guardian.
Við dómsuppkvaðningu sagði Young lávarður að meðal þess sem hann hefði horft til við ákvörðun refsingarinnar væri að láta hana virka sem fælingarmátt fyrir alla háttsetta embættismenn stórra stofnana sem gætu freistast til að misnota stöðu sína á þann hátt sem Murrell gerði.
Dómarinn sagði að Murrell hefði ekki gefið neina haldbæra skýringu á glæpum sínum. Verjandi Murrells sagði hann skammast sín mjög fyrir háttsemi sína og hann teldi sig eiga refsinguna skilið.
Sturgeon var grunuð um aðild að fjárdrættinum en tveggja ára rannsókn leiddi í ljós að hún hafði enga aðkomu að glæpum eiginmannsins. Sturgeon tilkynnti um lögskilnað þeirra hjóna í janúar í fyrra en sagði að þau hefðu verið skilin að borði og sæng um tíma.