Vickrum Digwa, sem dæmdur var í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á hinum 18 ára Henry Nowak í Southampton, er sagður lifa í stöðugum ótta í einu alræmdasta öryggisfangelsi Bretlands.
Digwa var dæmdur í lífstíðarfangelsi og þarf að afplána að lágmarki 21 ár eftir að hafa stungið Henry fimm sinnum með hnífi í desember á síðasta ári.
Hann var fluttur í HMP Frankland í Durham eftir dóminn en þar eru hættulegustu glæpamenn Bretlands vistaðir, þar á meðal hryðjuverkamenn og dæmdir morðingjar.
Heimildarmaður innan fangelsiskerfisins segir í samtali við Daily Mail að Digwa hafi komið þangað skelfingu lostinn.
„Digwa kom til Frankland skelfingu lostinn. Ég meina bókstaflega skjálfandi. Hann var dauðhræddur. Það var ekkert eftir af hrokanum sem sást á myndbandsupptökunum frá lögreglunni. Ég held að hann hafi talið að hann myndi ekki lifa fyrstu nóttina af.“
Neitaði að fara á fangelsisálmu
Upphaflega stóð til að vista Digwa á A-álmu fangelsisins, sömu álmu og morðinginn Ian Huntley hafði verið vistaður á áður en hann var barinn til bana með málmstöng af öðrum fanga í febrúar.
Þegar Digwa fékk að vita hvert ætti að senda hann neitaði hann að fara þangað og bað um að vera vistaður í einangrun af ótta um eigið öryggi.
Þar var hann aðskilinn frá öðrum föngum og jafnvel dagleg hreyfing hans fór fram í lokuðu búri undir eftirliti fjögurra fangavarða.
Eftir nokkrar vikur var hann færður aftur á almenna álmu en er sagður vera undir sérstöku eftirliti vegna hættu á að aðrir fangar ráðist á hann.
„Það eru fangar í Frankland sem munu ráðast á hann vegna þess hver hann er og vegna þess að þeir geta síðan státað sig af því að hafa barið hann,“ segir heimildarmaður Daily Mail.
Hann segir Digwa auk þess sýna óttann utan á sér.
„Líkamstjáning hans lætur hann líta út eins og fórnarlamb. Hann er hræddur og það sést í augunum á honum.“
Stakk Henry fimm sinnum
Henry Nowak var nemandi við Southampton háskóla og var á leið heim eftir kvöld úti þann 3. desember þegar leiðir hans og Digwa lágu saman.
Eftir orðaskipti dró Digwa upp hníf og stakk Henry í bringuna. Hann stakk hann síðan fjórum sinnum til viðbótar, þar á meðal tvisvar í bakið þegar Henry reyndi að flýja.
Í kjölfarið reyndi Digwa að sannfæra lögreglu um að Henry hefði verið árásarmaðurinn og að sjálfur hefði hann orðið fyrir kynþáttafordómum.
Móðir Digwa, Kiran Kaur, tók morðvopnið af vettvangi og faldi það heima hjá fjölskyldunni.
Hún var síðar sakfelld fyrir að aðstoða brotamann og dæmd í þriggja ára fangelsi.