Maður á þrítugsaldri lést af sárum sínum eftir að ráðist var á hann með eggvopni í Kristianstad í Svíþjóð í dag. Að sögn lögreglunnar í Kristanstad lenti maðurinn í átökum þar sem hann særðist og var þá fluttur á bráðamóttöku af aðstandendum. Neyðarlokun var svo komið á á bráðamóttökunni.
Þetta kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins SVT.
„Við köllum þetta innilokun. Enn er opið fyrir sjúklinga, en lögreglumenn og öryggisverðir eru á staðnum á bráðamóttökunni,“ er haft eftir Tomas Nilsson, hjá upplýsingadeild Region Skåne, í frétt SVT.
Samkvæmt upplýsingafulltrúa lögreglunnar varð mikið uppnám á bráðamóttökunni þegar maðurinn var fluttur þangað. Lögreglan og öryggisverðir hafi þurft að „leysa úr málum og koma ró á ástandið“.
„Það voru mjög mikil öskur“
Lögreglan tilkynnti að maðurinn væri látinn um klukkan átta í kvöld á staðartíma og að málið væri nú rannsakað sem morð.
„Nú hefst nýr áfangi þar sem við erum með meint morð til rannsóknar. Við munum að sjálfsögðu safna saman eins mörgum vitnum og við getum á Östra Storgatan [þar sem átökin áttu sér stað] en einnig á bráðamóttökunni,“ segir Leif Fransson upplýsingafulltrúi lögreglunnar.
Enginn grunaður hefur verið handtekinn.
Rebecka Johansson býr á Östra Storgatan, nálægt þar sem slagsmálin áttu sér stað. Í frétt SVT er haft eftir henni: „Ég heyrði hræðileg læti hérna fyrir utan. Það voru mjög mikil öskur. Það voru einhver slagsmál. Það hefur verið lokað af síðan þá. Það er allt í blóði út um alla götuna.“