Eftir dálitla rigningu í nótt og snemma í morgun hefur létt til á Suður- og Vesturlandi og möguleiki er á að hitinn skríði upp í 20 gráður þegar best lætur.
Samkvæmt veðurkorti Veðurstofu Íslands verður nær heiðskírt í höfuðborginni þegar líða tekur á daginn og klukkan 16 er því spáð að hitinn verði 18 stig í borginni.
Mesti hiti sem mælst hefur á landinu það sem af er degi er 17,4 stig á Tálknafirði, 17,3 á Patreksfirði og 17,1 í Mosfellsbæ.