Milljónamæringar í nýstofnuðum félögum með og á móti ESB
Fimm einstaklingar á hátekjulistanum eru í framvarðasveit þeirra samtaka sem annaðhvort berjast með eða móti því að Ísland hefji aðildarviðræður við ESB. Sá sem er með hæstu tekjurnar í þessum hópi fékk yfir hundrað milljónir í árstekjur og er hlynntur aðildarviðræðum.
Tveir forsvarsmenn Áfram Ísland og einn þeirra helsti stuðningsmaður eru á Hátekjulista Heimildarinnar í ár og þrír úr röðum Já til að sjá. Enginn úr Heimssýn né stjórn Evrópuhreyfingarinnar er hins vegar á listanum.
Samtökin fjögur takast nú á um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst um hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Áfram Ísland og Heimssýn berjast gegn því að viðræðurnar verði teknar upp að nýju og vilja að Ísland standi áfram utan ESB.
Já til að sjá berst fyrir já-atkvæði í kosningunum svo ljúka megi viðræðum og leggja mögulegan aðildarsamning síðar fyrir þjóðina, án þess að samtökin taki afstöðu til þess hvort slíkur samningur eigi að verða samþykktur. Evrópuhreyfingin styður einnig áframhald viðræðna en hefur það jafnframt að markmiði að Ísland gangi í Evrópusambandið.
