Þrjú kynferðisbrot tengd hátíðarhöldum á Selfossi í nótt eru til rannsóknar lögreglu. Öll brotin tengjast hátíðarhöldum Kótelettunnar þó að þau hafi ekki öll átt sér stað innan hátíðarsvæðisins að sögn Bryndísar Jóhannesdóttur, aðalvarðstjóra lögreglunnar á Suðurlandi.
Einar Björnsson skipuleggjandi Kótelettunnar segir svona lagað aldrei hafa komið upp áður í 16 ára sögu hátíðarinnar. Skipuleggjendur leggi ríka áherslu á að tryggja öryggi hátíðargesta.
„Ef allt reynist rétt þá eru það að sjálfsögðu mikil vonbrigði ef að slíkt hefur gerst,“ segir Einar.
Allt ofbeldi fordæmt og mikil öryggisgæsla
„En hér hefur allt ofbeldi verið fordæmt og passað upp á það með öflugasta myndavélakerfi sem nokkur hátíð á Íslandi getur státað sig af. Við erum með 45 vélar virkar í upptöku í öllum hornum til að tryggja öryggi gesta og passa að allt fari sem réttast hér fram.“
Skipuleggjendur aðstoði lögreglu við rannsókn málanna og hafi veitt henni aðgengi að myndefni úr öryggismyndavélum hátíðarinnar.
Fannst hátíðin rólegri en mörg önnur ár
Aðspurður segist hann ekki vita hvað kunni að hafa verið öðruvísi en árin á undan. Að hans mati hafi hátíðin raunar virst rólegri en mörg önnur ár.
„Mann vantar fleiri upplýsingar um þessa meintu atburði þannig að ég get kannski ekki alveg fullyrt um það. En mér fannst þetta reyndar bara fara ótrúlega fallega fram þrátt fyrir að það væri svona smá suddi hérna hjá okkur. Það voru allir í ótrúlega mikilli gleði þrátt fyrir það og skemmtu sér alveg konunglega. Þannig að þetta er alveg ótrúlega leiðinlegt að heyra að eitthvað svona hafi getað gerst, og hafi gerst.“