Óvenjulega hár hiti hefur mælst á Suðurskautslandinu þar sem 28 ára gamalt hitamet fyrir júnímánuð hefur verið slegið. Loftslagsfræðingurinn Jose Luis Stella hjá argentínsku veðurstofunni segir í samtali við AFP að þróunin endurspegli áframhaldandi hlýnun á svæðinu og að ís bráðni nú á óvenjulegum hraða þrátt fyrir að vetur sé hafinn á suðurhveli jarðar.
Við argentínsku rannsóknarstöðina Esperanza á norðurhluta Suðurskautsins mældist hitinn 15,4°C þann 6. júní, sem er hæsti júníhiti sem þar hefur verið skráður. Fyrra metið var 13,3°C og hafði staðið frá árinu 1998. Meðalhiti í júní við stöðina er hins vegar um 6 gráðum undir frostmarki.
Tvær aðrar argentínskar rannsóknarstöðvar á svæðinu, Marambio og San Martin, skráðu einnig metháan hita dagana 5. og 6. júní. Við Marambio fór hitinn í 11,8 °C og við San Martín í 9,4 °C, sem eru hæstu júnímælingar sem þar hafa verið skráðar.
Hluti af langvarandi þróun
Raul Cordero, prófessor við Háskólann í Groningen, segir í samtali við AFP að þessi hitabylgja sé ekki einstök heldur hluti af þróun sem hafi verið að styrkjast á undanförnum árum. Sambærileg hitaköst geti orðið tíðari ef ekki takist að draga úr hlýnun jarðar.
Vísindamenn benda á að aukinn hiti hafi þegar sýnileg áhrif á umhverfið á Suðurskautslandinu. Meiri úrkoma falli nú sem regn í stað snjókomu, sem geti haft áhrif á vistkerfi svæðisins, meðal annars dýralíf á borð við mörgæsastofna.
Við Esperanza-stöðina hefur hitastig verið yfir frostmarki daglega í þrjár vikur samfleytt. Afleiðingin er sú að stór svæði á nyrsta hluta Suðurskautslandsins eru enn snjólaus, sem telst afar óvenjulegt á þessum árstíma þegar vetur ríkir á svæðinu.