Matvælastofnun hefur kært mann til lögreglu vegna framgöngu hans gagnvart starfsmönnum stofnunarinnar. Stofnunin segir að maðurinn hafi meðal annars hótað starfsmönnum ofbeldi vegna starfa þeirra við vörslusviptingu dýra.
Matvælastofnun segir að maðurinn hafi líka tekið búnað ófrjálsri hendi og boðið starfsfólki greiðslu fyrir afhafnir í sína þágu. Í tilkynningu um kæruna á vef stofnunarinnar segir að þetta sé í fyrsta skipti sem stofnunin kæri mann fyrir að bera fé á starfsfólk sitt.
Maðurinn hefur skrifað mikið um Matvælastofnun og afskipti hennar af sér á Facebook-síðu sína. Hann hefur meðal annars deilt færslum starfsmanna og myndum af þeim og sakað þá um árásir og hryðjuverk gegn sér.
Matvælastofnun hefur brugðist við þessu með því að kæra hann fyrir meintar aðdróttanir og ærumeiðingar.
Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofnunar, sagði í apríl að dæmi væru um að starfsfólk hefði sett upp öryggiskerfi á heimilum sínum vegna óvenjumikilla hótana og áreitis. Þá hafði komið til álita hvort starfsfólkið þyrfti neyðarhnappa.