Magyar og flokkur hans Tisza unnu stórsigur í þingkosningunum í Ungverjalandi 12. apríl og þar með lauk 16 ára valdatíð fráfarandi forsætisráðherra Viktors Orbáns. Magyar lofaði kjósendum að uppræta spillingu og snúa við umdeildum breytingum sem Orbán kom í gegn á dómskerfinu, fjölmiðlum, fræðasamfélaginu og víðar.
Magyar hefur hvatt forseta Ungverjalands og aðra stuðningsmenn Orbáns til að segja af sér. Búist er við miklum hátíðarhöldum bæði innan og utan þinghússins í Búdapest í dag og fánar, skreytingar og lagaval endurspegla virðingarvott við Evrópusambandið, samfélag Rómafólks og Ungverja sem búsettir eru erlendis.
Andrea Virag, forstjóri Republikon Institute hugveitunnar, segir að Magyar vilji sýna að hann sé fulltrúi þjóðarinnar og vilji sætta þjóðina á ný eftir áralanga valdatíð Orbáns sem einkenndist af sundrung. Hún segir að með hátíðarhöldunum vilji Magyar sýna að nú sé ekki bara breytt ríkisstjórn við stjórn heldur marki þau upphaf nýrra tíma.