Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi eða nótt ökumann sem ók á 112 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 50. Hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Þetta kemur fram í morgunpósti lögreglu.
Þar segir að annar ökumaður hafi verið stöðvaður fyrir að aka á nagladekkjum. Nagladekkjatímabilinu lauk um miðjan apríl.
Tvær tilkynningar um eld í grillum bárust lögreglu. Lítið eða ekkert tjón varð.
Þá hefur lögregla eld í ruslageymslu til rannsóknar. Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða.